Beint í efni
Fjölskyldustund_móðir_dóttir.

Opn­ir tím­ar: Fjöl­skyldu­stund­ir

Í fjölskyldustundum er unnið að því að efla sjálfstraust, sjálfskærleik, slökun og innra jafnvægi í gegnum hugleiðslu og sjálfstyrkjandi æfingar.

Stundirnar eru ætlaðar fjölskyldum þar sem fjölskyldumeðlimur hefur greinst með krabbamein. Börn á grunnskólaaldri og fjölskyldur þeirra eru hjartanlega velkomin.

Fjölskyldustundirnar eru haldnar fimmtudagana 18. september og 16. október, kl. 16:30 – 17:30  í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

Leiðbeinandi er Stefanía Ólafsdóttir, grunnskólakennari og hugleiðsluleiðbeinandi.

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.