Núvitund og samkennd í eigin garð (fjögur skipti)
Á námskeiðinu verða kenndar ýmsar grunnæfingar í núvitund og samkennd, auk fræðslu, umræðna og heimaverkefna.
Farið verður meðal annars yfir leiðir sem gefa af sér meiri mildi og skilning í eigin garð þegar eitthvað bjátar á, í stað gagnrýni.
Námskeiðið er vikulega í fjögur skipti , mánudagana 16. september til 7. október kl. 14:00 - 16:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8.
Leiðbeinandi er Anna Dóra Frostadóttir, klínískur sálfræðingur.
Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.