Beint í efni
Samkennd

Nú­vit­und og hug­ræn at­ferl­is­með­ferð eft­ir krabba­meins­með­ferð (1/9)

Núvitund og hugræn atferlismeðferð eftir krabbameinsmeðferð er námskeið þar sem kennt er í 9 skipti og er byggt á enskri fyrirmynd (Mindfulness Based Cognitive Therapy for Cancer eftir Trish Bartley).

Þetta er reynslumiðað námskeið, sem tengir saman aldagamlar austrænar hugleiðsluaðferðir, og nýja vísindalega þekkingu og rannsóknir í sálfræði og taugasálfræði.

Hugleiðsla er stór hluti af námskeiðinu og nýtist best þeim sem eru tilbúnir til að hugleiða helst daglega heima á meðan á náminu stendur.

Námskeiðið er fyrst og fremst hugsað fyrir þá sem hafa lokið virkri krabbameinsmeðferð og þeim sem þurfa á langtímameðferð vegna krabbameins að halda.

 Umsagnir:

  • „Við fengum svo mikið af verkfærum sem ég mun klárlega nýta mér áfram. Munurinn á mér í byrjun og lok námskeiðsins var umtalsverður. Ég er svo miklu rólegri og yfirvegaðri, get tekist betur á við mótlæti og líður einhvernveginn bara betur með sjálfa mig og allt sem ég á og hef í kringum mig“.
  • „Frábært námskeið sem kom mér á óvart og dásamlegir leiðbeinendur“.
  • „Mjög andlega styrkjandi og hvetjandi námskeið“.

Námskeiðið er 9 skipti dagana 9., 13., 16., 20., 23., 27. og 30. október og 3. og 6. nóvember, kl: 13:00-15:30 í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8.

Leiðbeinendur eru Margrét Arnljótsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði og Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og Jóga Nidra kennari.

Nánari upplýsingar í tölvupósti radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.

Ekkert þátttökugjald.