Beint í efni
Núvitund og samkennd

Nám­skeið: Nú­vit­und og sam­kennd (1/5)

Á námskeiðinu verða kenndar ýmsar grunnæfingar í núvitund og samkennd, auk fræðslu, umræðna og heimaverkefna.

Farið verður meðal annars yfir leiðir sem gefa af sér meiri mildi og skilning í eigin garð þegar eitthvað bjátar á, í stað gagnrýni.

Námskeiðið er vikulega í fimm skipti , mánudagana 15. september til 13. október kl. 14:00 - 16:00, í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8.

Leiðbeinandi er Anna Dóra Frostadóttir, klínískur sálfræðingur. 

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald. 

,,Fann bara að þetta var bara nákvæmlega það sem ég þurfti sem aðstandandi . Að vita að Allt sé í lagi að líða . Takk fyrir mig"!

,,Ef þér finnst þú vera einn/ein með áhyggjur af veikindum þínum, barns, maka eða annars aðstandanda þá var þessi samvera yndisleg og gefandi. Styðjandi á allan hátt þó stundum veki upp tilfinningar",

,,Algengt vandamál sem mörg okkar kannast við en hafa ekki þekkingu né tól til að nýta sér í að ná bata. Það er ekki nóg að fara bara í krabbameinsmeðferð heldur þarf að hjálpa sér að verða betri þú út restina af lífinu. Þar kemur þetta námskeið sér vel".

Ráð­gjöf og stuðn­ing­ur þér að kostn­að­ar­lausu

Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.