Námskeið: Núvitund og hugræn atferlismeðferð eftir krabbameinsmeðferð (7/9)
Á námskeiðinu eru tengdar saman aldagamlar austrænar hugleiðsluaðferðir, taugasálfræði og þekking á hvernig við bregðumst við áföllum eins og það að fara í gegnum krabbameinsmeðferð óneitanlega er.
Námskeiðið er byggt á enskri fyrirmynd (Mindfulness Based Cognitive Therapy for Cancer eftir Trish Bartley).
Hugleiðsla er allstór hluti af námskeiðinu sjálfu, auk þess sem sterklega er mælt að þátttakendur æfi hugleiðlsu á milli tímana á meðan á námskeiðinu stendur.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa greinst með krabbamein.
Námskeiðið er í allt 9 skipti 10., 13., 17., 20., 24., 27. og 31. mars og 7. og 10. apríl, kl: 13:00-15:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8.
Leiðbeinendur eru Margrét Arnljótsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði og Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og Jóga Nidra kennari.
Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
Ekkert þátttökugjald.
