Beint í efni
Námskeið göngur

Nám­skeið: Heil­næm úti­vist og fræðsla - vor 2026 (20/20)

Vikulegar göngu- og fróðleiksferðir. Námskeiðið hófst 24. janúar og stendur til boða þeim sem einhvern tímann hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra.   

Heilnæm útivist - andleg og líkamleg heilsubót! 

Í samstarfi við Ferðafélag Íslands heldur Krabbameinsfélagið námskeiðið Heilnæm útivist og fræðsla. Vikulegar, léttar göngur sem fléttaðar eru ýmiskonar fróðleik um náttúru og sögu.  

Námskeiðið býðst öllum sem einhvern tíma hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra.   

Námskeiðið er nú haldið í fimmta sinn. Mikil almenn ánægja hefur verið meðal þátttakenda.   

Markmiðið er að njóta hollrar útivistar, fræðslu og félagsskapar við fólk sem deilir reynsluheimi og stuðla þannig að betri andlegri og líkamlegri heilsu fólks sem tekst á við afleiðingar krabbameins og meðferðar vegna þess.   

Umsjónarmenn og fararstjórar eru sem fyrr þau Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir frá Ferðafélagi Íslands, þeim til aðstoðar og fulltingis er starfsmaður Krabbameinsfélagsins.