Mottumarshlaup
Mottumarshlaupið verður haldið í þriðja sinn þann 19. mars 2026. Dagskráin hefst kl. 17:30 en hlaupið verður ræst kl. 18. Hlaupið verður frá Fagralundi í Kópavogi um Fossvogsdalinn.
Hlaupið verður haldið í þriðja sinn þann 19. mars, dagskráin hefst kl. 17:30 með léttri upphitun og þátttakendur koma sér í rétta grírinn fyrir hlaupið sem verður ræst kl. 18:00. Hlaupið hefst og lýkur við Fagralund í Kópavogi og liggur hlaupaleiðin um Fossvogsdalinn. Borðið er upp á 5 km löglega mælda braut, með tímatöku.
Dagskrá á hlaupdag
- 17:00 Afhending gagna í Fagralundi hefst, hægt að sækja gögn í Skógarhlíð 8 til kl. 16:00.
- 17:30 Upphitun hefst
- 18:00 Mottumarshlaupið ræst!
- 19:10 Tímatöku lýkur
Skráning og hlaupagögn
Skráningargjald er 5.000 krónur fyrir 12 ára og eldri (Mottumarssokkar fylgja með) og 1.500 krónur fyrir börn 11 ára og yngri (Mottumarsbuff fylgir með).
Hlaupagögn verða afhent frá 2. mars hjá Krabbameinsfélaginu, Skógarhlíð 8 mánudaga – fimmtudaga á milli kl. 09:00 – 16:00 og á föstudögum á milli 09:00 – 14:00.
