Mannamál - karlar og krabbamein (1/4)
Námskeið fyrir karla sem eru með krabbamein eða hafa lokið krabbameinsmeðferð. Karlmenn leita sér upplýsinga í minna mæli en konur varðandi margt sem snertir eigin heilsu. Á námskeiðinu Mannamál viljum við breyta því og ræða þessa hluti um leið og við fræðumst um reynslu annarra.
Þegar maður greinist með krabbamein hefur það víðtæk áhrif á fjölmarga þætti í lífi manns. Margar spurningar vakna. Hvort sem um ræðir erfiðar tilfinningar, samskipti við aðra eða eitthvað sem snýr að sjúkdómnum sjálfum getur skipt verulega miklu máli að sækja sér upplýsingar og leita ráðgjafar. Þú þarft ekki að standa einn.
Námskeiðið Mannamál er kjörið tækifæri til að hitta aðra karla í svipuðum sporum, samhliða því að fá fjölbreytta fræðslu og gagnleg ráð.
Meðal þess sem rætt verður um:
- Áhrif þess að greinast með krabbamein og áhrif greiningarinnar á fjölskylduna
- Karlmennskuna, kynlíf og náinn sambönd.
- Jafnvægi þegar kemur að virkni, hvíld og svefni.
- Mataræðið og mýtur því tengdu.
- Streitustjórnun og hugarró.
Námskeiðið er í fjögur skipti, þriðjudagana 14. apríl til 5. maí kl. 13:00 – 15:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krabbameinsfélagsins.
Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.
