Beint í efni
Mynd af Ölmu Lilju og jólakransi.

Kransa­nám­skeið - Ak­ur­eyri

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis í samstarfi við Ölmu Lilju Ævarsdóttur blómahönnuð og eiganda blómaverkstæðisins Salvíu bjóða upp á kransanámskeið.

Þátttakendur fá aðstoð og kennslu við að binda sinn eigin krans og verða fær um að gera sína eigin kransa. Hráefni í krans er innifalið í námskeiðinu og þátttakendur fara heim með sinn krans í lok námskeiðs.

Efniskostnaður er 5.000 kr. 

Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem greinst hafa með krabbamein.

Í boði verða léttar veitingar.

Skráning: á kaon@krabb.is eða í síma: 461 1470.

Tvö námskeið:

Þriðjudaginn 9. desember kl. 16:00 - 19:00. - Tvö laus pláss!

Miðvikudaginn 10. desember kl. 16:00 - 19:00.

Hvar: Skrifstofu KAON, Glerárgötu 34.