Kraftur - í samstarfi við Útihreyfinguna - bjóða á kajak
Kraftur - í samstarfi við Útihreyfinguna - býður félagsmönnum sínum og aðstandendum þeirra á Kajak miðvikudaginn 9. júlí kl. 18.
Hér er nánari lýsing á viðburðinum nema við lofum að enginn þarf að velta nema hann vilji það!
Fátt er eins nærandi, draumkennt og dásamlegt og að líða hljóðlaust áfram á kajak í fullkominni sátt og tengingu við náttúruna. Á þessu þriggja klukkustunda námskeiði verður farið yfir þann grunn sem þarf til að geta bjargað sér á kajak og byrjað að lifa drauminn!
Farið er yfir búnaðinn og áratökin útskýrð áður en allir koma sér fyrir, hver í sínum kajak og ýtt er úr vör. Í framhaldi eru áratökin æfð ásamt mismunandi aðferðum við að stýra kajaknum, halda réttri stefnu, beygja og snúa við. Farið er yfir undirstöðuatriðin í félagabjörgun og að lokum eru allir látnir velta kajaknum sínum til að æfa sig í því að komast klakklaust úr honum og upp í hann aftur.
Mæting er við höfnina á Stokkseyri kl. 18 þar sem byrjað verður á því að taka til kajakana og klæða sig í viðeigandi fatnað áður en kennsla hefst.
Þátttakendur fá allan nauðsynlegan búnað á námskeiðinu og þurfa aðeins að mæta í hlýjum fötum og með aukaföt til skiptanna. Ítarlegur upplýsingapóstur er sendur á þátttakendur í aðdraganda námskeiðs.
Hámarksfjöldi í ferðina eru 15 manns svo mikilvægt er að skrá sig og afskrá sig hér
Viðburðurinn er aðeins fyrir félagsmenn Krafts og aðstandendur þeirra ❤️