Beint í efni
Jóga Nidra

Jóga Nidra - alla þriðju­daga

Opnir tímar í Jóga Nidra, djúpslökun og hugleiðslu.

Jóga Nidra er öflug leið til að kyrra hugann, losa um streitu og auka vellíðan. Iðkunin fer fram í liggjandi slökunarstöðu en hljóðfæri koma einnig við sögu til að dýpka upplifunina. Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.

Tímarnir eru ætlaðir þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.

Leiðbeinendur eru Lóa Björk og gestakennarar.

Tímarnir eru alla þriðjudaga og fimmtudaga í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, kl. 11:00 - 11:45. Ekkert þátttökugjald.

Skráning nauðsynleg á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.