Fræðslufundur Stómasamtakanna
Stómasamtökin verða með fræðslufund fimmtudagskvöldið 5. nóvember í húsi Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Fyrirlesari fundarins verður Marta Jóns Hjördísardóttir, talskona sjúklinga á Landspítalanum. Mun hún segja frá hlutverki sínu og helstu verkefnum í þágu sjúklinga.
Húsið verður opnað kl. 19:30 og hefst fundur kl. 20.
