Beint í efni
Bjargráð við kvíða

Fjar­nám­skeið: Bjargráð við kvíða (1/2)

Hvernig má koma auga á streituviðbrögð og langvarandi kvíða? Hagnýt bjargráð til að takast á við kvíða og streitu í daglegu lífi. 

Flestir upplifa kvíða á einhverjum tímapunkti í tengslum við krabbameinsgreiningu,  krabbameinsmeðferð eða eftirfylgni. Kvíði er í sjálfu sér ekki hættulegur, en honum geta fylgt ýmis óþægileg einkenni. Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum. 

Námskeiðið er í tveimur hlutum, miðvikudagana 21. og 28. ágúst kl. 13:00 – 14:30 og er fjarnámskeið.

Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krabbameinsfélagsins.

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.