Beint í efni
Bætt rútína, betri svefn, betri líðan

Fjar­nám­skeið: Bætt rú­t­ína, betri svefn, betri líð­an (4/4)

Fjögurra vikna námskeið þar sem lögð er áhersla á að bæta svefnrútínu, stuðla að góðum svefnvenjum og þar með betri svefni og líðan.

Farið verður yfir áhrif streitu og ýmissa lífsstílstengda þátta á svefn og líðan.

Þátttakendur fá verkfæri í hverri viku sem stuðla að því að bæta rútínu og svefn. Einnig verður lögð áhersla á áhrif streitu og  lífsstilstengda þátta á svefn og vellíðan. 

Námskeiðið er vikulega í fjögur skipti, miðvikudagana 22. október -  12. nóvember kl. 13:00 – 14:00 og er fjarnámskeið.

Leiðbeinandi er Inga Rún Björnsdóttir, sálfræðingur hjá Betra svefni.

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.