Fáskrúðsfjörður - Mottumarskvöld
Krabbameinsfélag Austfjarða stendur fyrir Mottumarskvöldi í Skrúði Fáskrúðsfirði. Húsið opnar kl. 19:00 þar sem boðið verðu upp á súpu og verða kynningarbásar og Mottumarsbúð.
Formleg dagskrá hefst kl. 20:00.
- Erindi um langvinnar og síðbúnar afleiðingar krabbameina
- Krabbameinsfélagið Framför - félag karla með krabbamen í blöðruhálskirtli verða með erindi
- Guðmundur R. sér um tónlistarflutning
- Björgvin Franz heldur erindið: Okið undan sjálfum mér
Ókeypis aðgangur og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Hvetjum fólk til þess að fjölmenna og eiga erindin við alla og málefnið snertir okkur öll.
