Dalvík - Samverustund
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður til samverustundar á Dalvík
Hvar: Mímisbrunnur, Mímisvegur 6 Dalvík
Þriðjudaginn 6. október verður Jenný Valdimarsdóttir ráðgjafi Krabbameinsfélagsins á staðnum og býður upp á erindið: Þreyta sem enginn sér - algeng aukaverkun krabbameins.
Samverustund fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra, þar sem fólk getur hitt aðra í svipaðri stöðu og átt notalegan tíma saman.
Viðburðurinn er öllum opinn og endurgjaldslaus. Við hvetjum fólk til að mæta og einnig einstaklinga í nágranna sveitarfélögum.
