Beint í efni
Styrkleikarnir á Úlfarsfelli 2024_Norðurljósin

Bleik­ir Styrk­leik­ar við ræt­ur Úlf­ars­fells

Á Bleika deginum verða Styrkleikar við rætur Úlfarsfells. Að þeim standa Krabbameinsfélagið og félagarnir Kjartan Long og Albert Þorbergsson, sem halda úti verkefninu 100 Úlfarsfellstindar. Við komum saman, göngum og sýnum samstöðu með þeim sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra.

Klukkan 19:30 verður haldin hugljúf ljósastund á fjallinu.

Styrkleikarnir hafa verið haldnir áður á Úlfarsfelli en í ár verða þeir með breyttu sniði, þannig að sem flestir geti tekið þátt. Það verða tvær gönguleiðir í boði og báðar mynda þær slaufu. Önnur gönguleiðin fer á topp Úlfarsfellsins en hin er við rætur fellsins og ætti að henta flestum.Þú velur þá leið sem hentar þér og gengur á þínum eigin hraða.

Kjartan og Albert, sem margir þekkja úr verkefninu 100 Úlfarsfellstindar, munu leiða göngu á topp Úlfarsfells. Þeir félagar hafa í gegnum árin hvatt fjölda fólks til útivistar og hreyfingar á fjallinu og vilja nú nýta kraftinn í göngusamfélaginu til að sameina fólk með fallegri samverustund og sýna þeim stuðning sem þekkja krabbamein af eigin raun.

Starfsfólk Krabbameinsfélagsins verður á staðnum frá kl. 17:00 – 20:00 og tekur vel á móti öllum. Boðið verður upp á heitt kakó og tækifæri til að spjalla og eiga góða stund saman.

Við vonumst til að sjá sem flesta, fjölskyldur, vini, samstarfsfólk og alla sem vilja sýna stuðning og samstöðu með þeim sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra.

Ljósastund kl. 19:30.
Við komum saman á bílastæðinu kl. 19:30 og göngum að krossgötum gönguleiða dagsins. Þar hlýðum við á hugvekju frá Þorra Snæbjörnssyni, ráðgjafa Krabbameinsfélagsins, og reynslusögu Rósu Bjargar Karlsdóttur, sem minnir á mikilvægi þess að Sjá sig. Við kveikjum á kertum og eigum saman fallega stund þar sem við hugsum til þeirra sem hafa greinst með krabbamein, þökkum fyrir þau sem eru enn hjá okkur og minnumst þeirra sem við höfum misst.

Að því loknu hvetjum við fólk til að halda áfram göngu sinni eftir þeirri leið sem því hentar best, þannig munum við saman lýsa upp slaufurnar. Kjartan og Albert leiða göngu upp á Úlfarsfell og tryggja að enginn verði skilinn eftir.

Til að gæta fyllsta öryggis og í leiðinni mynda táknræna ljósakeðju mælumst við til að allir komi með ljós til að lýsa leiðina upp og niður Úlfarsfellið.