Austurland - Skíðakennsla fyrir fullorðna
Krabbameinsfélag Austfjarða býður í skíðakennslu fyrir fullorðna í Oddsskarði
Þriðja árið í röð eru snillingarnir Jóhann, Jenný og Lilja með okkur í liði og ætla að vera með skíðakennslu fyrir fullorðna. Við stefnum á miðvikudaginn 4. mars ef veðurguðirnir verða okkur hliðhollir en erum með til vara aukadaga aðeins seinna í mars ef svo ber undir.
Nú er tækifæri til þess að smella á sig klossum og skella sér í fjallið! Hægt er að leigja allan búnað og hægt er að kaupa kort í fjallið bæði í Sundlauginn á Eskifirði á leiðinni upp í skarð og í Skálanum uppi í Oddsskarði.
