Akureyri - Skapandi handverk og spjall, konur
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður konum til samveru yfir handverki og spjalli.
Hópurinn hittist annan hvorn fimmtudag kl.13:30 á Majó í Menningarhúsinu Hofi, 2. hæð.
Konurnar koma gjarnan með handverk en margar mæta einfaldlega til þess að njóta félagsskaparins og kaffisopans.
Það þarf ekki að skrá sig heldur er nóg að mæta.
Sjálfboðaliði leiðir hópinn, nýir félagar velkomnir! Kaffi og spjall í góðum félagsskap.
