Akureyri - Perlað af Krafti
Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætla að perla armbönd laugardaginn 31. janúar kl. 13:00 í Menntaskólanum á Akureyri tilefni af vitundarvakningu félagsins.
Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem fer í sölu núna í janúar og er hluti af árlegri fjáröflunar- og vitundarvakningu Krafts.
Góðir gestir hjálpa til við að halda uppi stuði, en þar má nefna Villa Bergmann Vandræðaskáld og Tinnu Óðins sem gerði garðinn frægan í Söngvakeppninni!
Hjálpum Krafti að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.
