Beint í efni
Launaflshlaupið 2025

1. maí hlaup Launa­fls og Krabba­meins­fé­lags Aust­fjarða

Hið árlega Launaflshlaup í samvinnu við Krabbameinsfélag Austfjarða verður haldið 1. maí.

Hlaupið verður frá verslun Launafls að Óseyri 9 á Reyðarfirði að Sundlaug Eskifjarðar, samtals 13,5 km.

Hlaupið hefst kl. 11:00 en skokkarar verða ræstir kl. 10:40.

Launaflshlaupið var fyrst haldið árið 2012 en hugmyndin af því kviknaði vegna þess hve fá hlaup væru haldin í Fjarðabyggð auk þess sem tilvalið væri að hlaupa saman 1. maí og sýna þannig samstöðu og efla andann á degi verkalýðsins.

Hlaupinu hefur vaxið fiskur um hrygg síðustu ár og með samstarfi við Krabbameinsfélag Austfjarða hefur það einnig látið gott af sér leiða því þátttökugjaldið 1500 krónur rennur til þess. Frítt er fyrir þátttakendur 16 ára og yngri. Ath. foreldrar taka ábyrgð á börnum sínum sem hlaupa.

Eftir hlaupið er frítt er fyrir alla hlaupagarpa í sundlaugina á Eskifirði og boðið upp á kaffi og kleinur.

Keppt er um farandbikar í karla- og kvennaflokki en einnig eru verðlaunapeningar fyrir 1. 2. og 3. sætið í báðum flokkum.

Skráning er hjá Magnúsi: magnus@launafl.is og hjá Hrefnu: kraus@simnet.is

Hér má finna Launaflshlaupið á Facebooksíðu Krabbameinsfélags Austfjarða