Viltu skipuleggja Styrkleika?
Krabbameinsfélagið hvetur fólk og hópa um allt land til að taka höndum saman, gerast sjálfboðaliðar og halda Styrkleika. Með Styrkleikunum virkjast samfélagið, tengsl styrkjast og við sýnum fólki sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning, samstöðu og hlýju.
Styrkleika má skipuleggja hvar sem er og laga að þörfum hvers hóps. Á Styrkleikunum kemur fólk saman og skiptist á að ganga í fyrir fram ákveðinn tíma.
Það er táknræn leið til að sýna þeim sem greinst hafa með krabbamein að samfélagið stendur með þeim allan leið. Hver og einn gengur á sínum hraða og eftir sinni getu. Styrkleikarnir eru frábært tækifæri til hópeflis og skemmtilegrar samveru.
Um leið eru tengsl Krabbameinsfélagsins við fólk á landsbyggðinni styrkt og sýnt í verki að samstaða skiptir máli.
Stuðningur við skipuleggjendur
Krabbameinsfélagið styður við þau sem taka að sér að skipuleggja Styrkleika í sínu nærumhverfi og á þann grunnbúnað sem þarf. Ef þú hefur áhuga og/eða vilt fá frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á styrkleikarnir@krabb.is eða hafa samband við Rakel Ýr í síma 540 1925.



