Tölur um krabbamein eru ekki bara tölur - að baki þeim er fólk
Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn er í dag, 4. febrúar. Slagorð dagsins í ár, United by unique, undirstrikar að meiri árangur næst þegar þjónusta, stuðningur og úrræði fyrir fólk sem tekst á við krabbamein byggja á nálgun sem tekur sem mest mið af aðstæðum og áskorunum hvers og eins. Við hjá Krabbameinsfélaginu tökum heilshugar undir það.
Ár hvert fá milljónir manna um heim allan krabbamein og Ísland er ekki undanskilið: bara frá árinu 2015 hafa rúmlega 20.000 Íslendingar greinst með krabbamein og einn af hverjum þremur fær krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni.
Með öðrum orðum munu flest okkar upplifa krabbamein á eigin skinni – annaðhvort sem sjúklingar eða aðstandendur. Krabbamein er málefni sem varðar okkur öll.
Mismunandi þarfir og áskoranir
Á Alþjóðlega krabbameinsdeginum í ár, er sjónum beint að sérstöðu hvers einstaklings sem fær krabbamein. Þótt margir eigi það sameiginlegt að tilheyra þeim hópi fólks sem er með eða hefur verið með krabbamein, er upplifun hvers og eins ólík. Aðstæður, þarfir og áskoranir eru mismunandi og mikilvægt er að skilningur sé á því.
Að baki tölum um krabbamein er raunverulegt fólk sem verður fyrir áhrifum á ólíkan hátt.
Slagorð Alþjóðlega krabbameinsdagsins núna er United by unique, sem undirstrikar að meiri árangur næst þegar þjónusta, stuðningur og úrræði fyrir fólk sem tekst á við krabbamein byggja á nálgun sem tekur sem mest mið af aðstæðum og áskorunum hvers og eins. Við hjá Krabbameinsfélaginu tökum heilshugar undir það.
Reynslusögur auka skilning og þekkingu
Við hjá Krabbameinsfélaginu vitum hve mikils virði frásagnir þeirra sem hafa greinst með krabbamein og aðstandenda þeirra eru . Þær veita innsýn í aðstæður sem geta verið mjög gagnlegar fyrir fólk sem stendur í svipuðum sporum ásamt því að auka almennt skilning og þekkingu á því sem fólk sem tekst á við krabbamein stendur frammi fyrir.
Fjöldi fólks hefur í gegnum tíðina treyst félaginu fyrir að miðla sínum sögum í átaksmánuðum Krabbameinsfélagsins, Mottumars og Bleiku slaufunni, á undanförnum árum. Þessar frásagnir hafa svo sannarlega aukið skilning almennings og sett margs konar málefni á dagskrá, til dæmis í október síðastliðnum beindum við sjónum að því hvernig það er að lifa með ólæknandi krabbamein.
Stuðningsnet um land allt
Krabbameinsfélagið og aðildarfélög bjóða upp á jafningjastuðning um allt land í gegnum Stuðningsnetið, fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur. Þau sem veita stuðning eru einstaklingar sem hafa greinst með krabbamein eða eru aðstandendur og hafa lokið sérstöku stuðningsfulltrúanámskeiði hjá Krabbameinsfélaginu.

Markmið Krabbameinsfélagsins eru að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins – með og eftir krabbamein. Að því miðar fjölbreytt starfsemi félagsins, svo sem stuðningur félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga við fólk sem fær krabbamein og aðstandendur þeirra, fræðsla og forvarnarstarf, krabbameinsrannsóknir og fjölmargt annað.
