Beint í efni
Sumarhappdrætti 2026

Sum­ar­happ­drætti Krabba­meins­fé­lags­ins 2026

Miðar í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins hafa verið sendir út. Með þátttöku í happdrættinu á fólk möguleika á glæsilegum vinningum um leið og það styrkir baráttuna gegn krabbameinum. Happdrætti Krabbameinsfélagsins hefur verið starfrækt óslitið í yfir 70 ár og komið mörgu til leiðar.  

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með rekstri og framkvæmd happdrættis Krabbameinsfélagsins og nýtir tekjur af því fyrst og fremst til fræðslu- og forvarnarstarfs. Sem dæmi um verkefni sem tekjum hefur verið varið til á undanförnum árum má nefna vitundarvakninguna Leghálsskimun – lítið mál! í janúar 2026 og hvatningarátakið Skrepp í skimun sem hefur staðið yfir frá því í október 2023 og átt þátt í betri þátttöku kvenna í brjóstaskimunum. Fræðslumyndirnar Frá óvissu til vonar – leghálskrabbamein á Íslandi og Brjóstamein sem sýndar voru á RÚV, voru einnig að hluta til fjármagnaðar fyrir tekjur happdrættisins. 

Í sumarhappdrættinu fá karlar senda happdrættismiða.  

Vinningar eru 396 talsins að verðmæti tæpar 67 milljónir króna. 

Aðalvinningurinn, að verðmæti 5.290.000 krónur er BYD Dolphin rafmagnsbíll, frá stærsta rafbílamerki í heimi. 

  • 40 úttektir frá Erninum, hver að verðmæti 500.000 krónur.  
  • 75 úttektir frá Fjallakofanum, hver að verðmæti 75.000 krónur 
  • 80 gjafabréf frá Icelandair, hvert að verðmæti 200.000  krónur.  
  • 200 gjafabréf frá Smáralind, hvert að verðmæti 100.000 krónur.  

Vinningarnir eru skattfrjálsir. 

Dregið verður 17. júní og verða vinningstölur birtar hér í lok dags 18. júní og í Morgunblaðinu þann 19. júní. Byrjað verður að greiða út vinninga 6. júlí, 2026. 

Við hvetjum fólk  til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Greiddur heimsendur miði er með tvöfaldar vinningslíkur (tvö miðanúmer). Happdrættismiðarnir eru sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka og eiga möguleika á glæsilegum vinningum.  

Miðar eru til sölu í vefverslun Krabbameinfélagsins en einnig má versla miða á skrifstofu félagins í Skógarhlíð 8. Frekari upplýsingar eru gefnar í síma 540 1928. Hægt er að hringja í það númer ef óskað er eftir að kaupa miða með greiðslukorti.  

Baráttan gegn krabbameinum er brýn. Krabbameinsfélagið spáir að krabbameinum fjölgi um 63% til ársins 2045, fyrst og fremst vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar. Það er hins vegar ekki greipt í stein því mörg krabbamein eru lífsstílstengd og því er hægt að fækka þeim. Rannsóknir benda til að hægt sé að koma í veg fyrir fjögur af hverjum tíu krabbameinum með heilsusamlegum lífsvenjum.    

Því skiptir öflugt forvarnarstarf miklu máli. Árangur af forvarnarstarfi gegn tóbaksnotkun sést greinilega á nýgengi lungnakrabbameins sem er á niðurleið hér á landi.  

Maí 2026.