Beint í efni
Styrkleikarnir Vestmannaeyjum

Styrk­leik­ar í Herj­ólfs­dal

Krabbavörn og Krabbameinsfélagið standa fyrir Styrkleikum í Vestmannaeyjum í annað sinn laugardaginn 29. ágúst kl. 12:00 – 21:00. Öll velkomin.

Styrkleikarnir er táknræn leið til að sýna þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum að samfélagið stendur með þeim allan leið. Hver og einn gengur á sínum hraða og eftir sinni getu.

Styrkleikarnir eru frábært tækifæri til hópeflis og skemmtilegrar samveru. Við hvetjum fjölskyldur, vinahópa, vinnufélaga, íþróttahópa og aðra til að koma og ganga í klukkustund eða lengur og eiga saman góðan dag með okkur í Herjólfsdal.

Styrkleikarnir verða settir á hádegi (kl. 12:00) á laugardag og við göngum saman til kl. 20:00, þegar allir sameinast í ljósastund þar sem kertum verður fleytt á tjörninni. Hugsum til þeirra sem greinst hafa með krabbamein og minntumst þeirra sem við höfum misst. Þetta er stund sem erfitt er að lýsa í orðum, því hún hrærir við svo mörgu innra með manni, alveg einstök.

Sjáumst á Styrkleikunum í Vestmannaeyjum, í fyrra myndaðist einstök stemning í dalnum komdu og upplifðu þetta með okkur.

Styrkleikar Vestmannaeyjum 2025

Viltu skipuleggja Styrkleika?

Styrkleika má skipuleggja hvar sem er og laga að þörfum hvers. Á Styrkleikunum kemur fólk saman og skiptist á að ganga í fyrir fram ákveðinn tíma.

Krabbameinsfélagið styður við þau sem taka að sér að skipuleggja Styrkleika í sínu nærumhverfi og á þann grunnbúnað sem þarf. Ef þú hefur áhuga og/eða vilt fá frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á styrkleikarnir@krabb.is eða hafa samband við Rakel Ýr í síma 540 1925.