Beint í efni

Sporn­um við þró­un­inni - Al­þjóða­dag­ur of­fitu er í dag

Í síðustu viku skilaði Krabbameinsfélagið inn umsögn í samstarfi við þrjú önnur félög um drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um málefni offitu. 

Alþjóðadagur offitu er haldinn 4. mars árlega, en þá er vakin athygli á nauðsyn þess að bregðast við aukningu offitu og áhrifum hennar á heilsu og líðan. Ofþyngd og offita tengjast meðal annars auknum líkum á krabbameinum og fjöldi barna og unglinga í ofþyngd eða með offitu fer vaxandi á Norðurlöndunum og er hlutfallslega mestur hérlendis. 

Lagt til að innleiðing hefjist innan árs 

Heilbrigðisráðherra, Alma Möller, hefur lagt fram drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um málefni offitu. Markmiðið er meðal annars að efla forvarnir og að algengi offitu meðal barna á Norðurlöndunum verði ekki lengur hæst á Íslandi.  

Krabbameinsfélagið, Diabetes Ísland, Félag fagfólks um offitu og SÍBS hafa skilað inn sameiginlegri umsögn þar sem þau fagna framkomnum drögum og styðja markmið þeirra. Í umsögninni er undirstrikað mikilvægi þess að brugðist sé við tafarlaust og fjölbreyttum aðgerðum beitt til að leysa vandann. Félögin leggja til að fimm aðgerðir verði settar í forgang og að tímalína verði stytt þannig að innleiðing hefjist innan árs. 

Byggjum traustan grunn 

Við hjá Krabbameinsfélaginu teljum málið afar brýnt og höfum undanfarin ár tekið þátt í norrænusamstarfi sem miðar sérstaklega að því að vinna gegn ofþyngd og offitu meðal barna, CAPOC. Ein helsta afurð verkefnisins er viðamikil skýrsla og út frá henni voru lagðar fram ráðleggingar til stjórnvalda um aðgerðir.  

Samhliða var framkvæmd könnun meðal almennings þar sem spurt var kerfisbundið út í afstöðu til stjórnvaldsaðgerða sem hefðu það að markmiði að draga úr ofþyngd og offitu meðal barna og unglinga. Sýndu niðurstöðurnar að almenningur er almennt hlynntur slíkum aðgerðum. 

Vandinn er umfangsmikill, flókinn og margþættur og engin einföld lausn dugar til. Með samtakamætti stjórnvalda, skóla og heimila er þó hægt að móta og hafa jákvæð áhrif á mataræði og hreyfivenjur barna og byggja traustan grunn fyrir áframhaldandi velgengni út lífið.