Sjáðu auglýsingu Bleiku slaufunnar 2026
Í Bleiku slaufunni í ár hvetjum við konur til að vera vakandi fyrir einkennum sem geta bent til krabbameins. Oftast eiga einkenni sér aðrar og meinlausari skýringar, en því fyrr sem krabbamein greinist, því betri eru batahorfur.
Í auglýsingunni fylgjumst við með ungri konu í amstri dagsins, sem frestar því að sjá sig og láta athuga einkenni sem valda henni þó greinilega áhyggjum.
Allt starf okkar hjá Krabbameinsfélaginu miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist eða lifi lengi, og líði betur, með og eftir krabbamein.
