Sérhæfð ráðgjöf frá Krabbameinsfélaginu á Húsavík 12. febrúar 2026
Við leggjum mikla áherslu á að tryggja að öll njóti þjónustu okkar, óháð búsetu. Þann 12. febrúar verður einn af okkar sérhæfðu ráðgjöfum staddur á Húsavík og við hvetjum nærstödd til að nýta tækifærið og bóka viðtal.
Í tengslum við krabbamein geta vaknað ótal spurningar og tilfinningar. Okkar ráðgjafar hafa sérhæft sig í að takast á við þær og þekkja gagnlegar leiðir til að ná betra jafnvægi þegar krabbamein hefur skekið tilveruna.
Til að ná markmiði okkar um þjónustu óháð búsetu bjóðum við margs konar fjarþjónustu, þar með talið viðtöl og námskeið með aðstoð fjarfundarbúnaðar. Ráðgjafar okkar bjóða hins vegar líka viðtöl á nokkrum stöðum um landið og 12. febrúar verðum við á Húsavík. Ef þú býrð á Húsavík eða í nágrenninu og þú eða einhver af þínum nánustu er að glíma við krabbamein, hvetjum við þig til panta tíma.
Það er alltaf ánægjulegt að vita af blómlegu starfi aðildarfélaga okkar, en Krabbameinsfélag Suður-Þingeyinga starfar á Húsavík og í nágrenni. Styrkir Velunnara Krabbameinsfélagsins renna að hluta til aðildarfélaganna og standa undir mörgu í þeirra starfi, sem er fjölbreytt um allt land.
Styrkleikarnir voru haldnir á Húsavík í fyrsta sinn á síðasta ári, en það er sólarhringsviðburður sem sameinar nærsamfélög í stuðningi við fólk með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur. Þátttakan og veðrið fór fram úr björtustu vonum skipuleggjenda, stemningin var einfaldlega einstök og samstaða íbúa með þeim sem hafa fengið krabbamein áþreifanleg. Urðu Styrkleikarnir ásamt öðru mikil hvatning til að efla enn frekar starf félagsins og þjónustu á staðnum.
Bóka viðtal
Þjónusta ráðgjafa Krabbameinsfélagsins er ókeypis og fara viðtölin á Húsavík fram í húsnæði Framsýnar, Garðarsbraut 26. Til að bóka viðtal er hægt að hringja í síma 461 1470 eða með því að senda póst á kaon@krabb.is.
