Beint í efni

Rúm­lega 500 bæst í hóp þeirra sem leita eft­ir stuðn­ingi hjá Krabba­meins­fé­lag­inu á ár­inu

„Ég er svo innilega þakklát fyrir að hafa verið gripin af ykkur og tekið svona vel.“

Mikil aukning hefur orðið á eftirspurn eftir ókeypis viðtölum hjá sérhæfðu fagfólki Krabbameinsfélagsins á fyrri helming ársins í samanburði við síðasta ár. Þrátt fyrir rúmlega 30% aukningu bókaðra viðtala hefur tekist að anna eftirspurninni vel og biðtíma áfram verið haldið í algjöru lágmarki. Rúmlega 500 hafa bæst í hópinn það sem af er árinu, en á sama tíma í fyrra var sú tala 350 og hefur því orðið helmingsaukning nýrra andlita.

„Það var brugðist mjög hratt við þegar ég hafði samband. Og ég fékk viðtal við ráðgjafa fljótlega.“

Jöfn og þétt aukning á eftirspurn frá upphafi

„Við höfum lagt mikla áherslu á að auka vitund um mikilvægi þess að sækja sér stuðning, því við vitum hvað það skiptir miklu máli,“ segir Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og teymisstjóri hjá Krabbameinsfélaginu. „Við höfum átt í góðum samskiptum við spítalann um að láta vita af okkur og höfum útbúið kynningarpoka sem fólk fær afhenta þar.“

„Við höfum séð mjög jafna og þétta aukningu á eftirspurn alveg frá upphafi og höfum meðal annars mætt þessari aukningu með því að fjölga starfsfólki. Það er okkur hjartans mál að fólk þurfi ekki að bíða of lengi eftir að komast að,“ segir Þorri. „Við framkvæmum líka reglulega þjónustukönnun á meðal þeirra sem leita til okkar og það er ánægjulegt að segja frá því að ánægjan með þjónustuna er mikil og við fáum mikla jákvæða endurgjöf.“

„Hlýlegt viðmót, enginn að flýta sér, starfsmenn afslappaðir og fylltu mig tilfinningu að ég væri velkomin og á réttum stað.“

„Ég fékk mjög góðar móttökur, það var hlustað vel á það sem ég sagði, ég fékk góð ráð og ábendingar sem hafa reynst mér vel.“

Styðja við bakið á fólki og fjölskyldum

Að fá krabbamein getur kollvarpað tilverunni. Þann veruleika þekkja fagaðilar Krabbameinsfélagsins, sálfræðingar, félagsráðgjafar og hjúkrunarfræðingar sem sérhæfa sig í því að styðja við bakið á fólki og fjölskyldum sem standa frammi fyrir þessu gríðarstóra verkefni. Til viðbótar við alla þeirra fagþekkingu búa þau einnig að því að hafa dýrmæta innsýn inn í reynslu fjölmargra sem hafa fetað þennan veg áður. Með þeirra hjálp verður reynsla eins orðið öðrum að liði.

Markmiðið með stuðningi og ráðgjöf er að aðstoða fólk við að ná jafnvægi í daglegu lífi í kjölfar þeirra breytinga sem greining krabbameins veldur. Þjónustan stendur til boða óháð því hvar fólk er statt í ferlinu og er einnig ætluð aðstandendum og syrgjendum. Þá er einnig hægt að fá stuðning varðandi samskipti við börn og unglinga um krabbamein og varðandi veikindi vinnufélaga.

„Rosalega gott að hafa aðgang að fagfólki á fyrstu skrefum greiningar. Fékk viðtal hjá félagsráðgjafa sem leiðbeindi mér t.d. í réttarmálum og vinnunni sem var svo gott því allt er smá yfirþyrmandi í byrjun.“

„Ég er afar þakklát fyrir það hvað Krabbameinsfélagið greip mig bara strax. Daginn eftir greiningu fékk ég tíma í Krabbameinsfélaginu sem gjörsamlega bjargaði mér.“

Lífið er alls konar - Reynslusaga Nínu Elísabetar Sandberg

Á vef Krabbameinsfélagsins má nálgast reynslusögur fólks sem hefur nýtt þjónustu Krabbameinsfélagsins með einum eða öðrum hætti. Nína segir hér frá reynslu sinni og fjölskyldu sinnar.

Ráð­gjöf og stuðn­ing­ur þér að kostn­að­ar­lausu

Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku, pólsku og þýsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.