Beint í efni

Krabba­meins­for­varn­ir í þágu okk­ar allra

Í dag er alþjóðlegi krabbameinsdagurinn. Þá er athygli beint að ýmsum  málefnum sem tengjast krabbameinum. Eitt af því mikilvægasta eru forvarnir, því þótt allir geti fengið krabbamein sýna rannsóknir að allt að því fjórða hvert krabbamein tengist lífsvenjum. Með heilsusamlegum lifnaðarháttum er því hægt að draga úr líkum á krabbameinum.

Ert þú í hópi þeirra sem vita hvaða lífsvenjur hafa áhrif á líkurnar á krabbameini?

Meðal þess helsta sem fólk getur gert til að draga úr líkum á krabbameini er að reykja hvorki né nota tóbak, fylgja sólvarnarráðleggingum og nota ekki ljósabekki, borða ríkulega af grænmeti, ávöxtum, heilkornavörum og trefjaríkum mat, drekka sem minnst af áfengi, hreyfa sig reglulega og þiggja boð í skimanir.

Reglulegar kannanir Krabbameinsfélagsins sýna að undanfarin ár hefur þekking fólks á áhrifaþáttum krabbameina aukist jafnt og þétt, ekki hvað síst á tengslum áfengisneyslu og mikillar líkamsþyngdar við auknar líkur á krabbameinum annars vegar og hins vegar á verndandi áhrifum reglulegrar hreyfingar og heilsusamlegs mataræðis. Enn eru þó margir sem þekkja ekki til þessara tengsla.

Ráðleggingar sem byggja á bestu vísindalegu þekkingu

Nú, í tilefni af alþjóðlega krabbameinsdeginum, er sérstök athygli vakin á nýjustu útgáfu af European Code Against Cancer sem eru ráðleggingar um það hvernig haga má lífsvenjum til að draga úr líkum á krabbameinum. Ráðleggingarnar sem eru nú uppfærðar í fimmta sinn frá árinu 1987 byggja á bestu og nýjustu vísindalegu þekkingu á forvörnum gegn krabbameinum og eru settar fram af  Alþjóðlegu krabbameinsrannsóknastofnunin (IARC), sem starfar undir Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO).

 Stjórnvaldsaðgerðir nauðsynlegar svo árangur náist 

Í fyrsta sinn beinast fyrrnefndar ráðleggingar ekki einungis að einstaklingum heldur einnig að stjórnvöldum. Þeim er leiðbeint um hvaða sannreyndu stjórnvaldsaðgerða hægt er að grípa til svo skapa megi umhverfi og aðstæður sem auðvelda fólki að taka heilsusamlegri ákvarðanir í daglegu lífi.  

Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn minnir á að öflugar forvarnir gegn krabbameinum eru mögulegar og að þær geta haft gríðarmikið að segja fyrir heilsu komandi kynslóða auk þess sem mikilvægt er að muna að forvarnastarf gegn krabbameinum er langtímaverkefni. Það er á ábyrgð allra; bæði einstaklinga, yfirvalda og samfélagsins alls að huga að þessum málum af alvöru.  

Horfum fram á veginn og hugsum stórt – sem samfélag getum við raunverulega náð miklu árangri með öflugum krabbameinsforvörnum, það sýndi sig meðal annars í tóbaksforvarnastarfi hérlendis áður fyrr. 

Öflugar forvarnir - færri krabbameinstilfelli.