Beint í efni
TM 2025

Krabba­meins­fé­lag­ið og TM hvetja kon­ur til að mæta í brjósta­skimun

Árlega greinast um 260 konur með brjóstakrabbamein á Íslandi, um er að ræða lang algengasta krabbameinið meðal kvenna hér á landi. Ein mikilvægasta forvörnin gegn brjóstakrabbameini er reglubundin mæting í skimun. Á Íslandi mættu einungis um 61 prósent kvenna í brjóstaskimun árið 2024, sem er mun lægra hlutfall en á hinum Norðurlöndunum en þar mæta um 80% kvenna í skimun árlega.

Til að bregðast við þessari þróun hafa Krabbameinsfélag Íslands og Tryggingafélagið TM hafið samstarf með það að markmiði að auka þátttöku kvenna um land allt í reglubundnum brjóstaskimunum. Mæting kvenna í skimanir er mismikil eftir landshlutum og einnig aldri og uppruna þeirra.  Samstarfinu er sérstaklega ætlað að minnka þann mun en til þess verður beitt fjölbreyttum leiðum. Með reglubundinni skimun aukast líkurnar á að brjóstakrabbamein greinist fyrr og á vægari stigum sjúkdómsins. Því fyrr sem mein greinast, því betri eru horfurnar og árangur meðferðar. TM og Krabbameinsfélagið munu jafnframt vinna saman að endurskoðun á skilmálum sjúkdómatrygginga til að tryggja að þau taki mið af þörfum þeirra sem greinast með krabbamein.

Til að styðja við markmið átaksins mun TM að auki endurgreiða einn mánuð af iðgjaldi sjúkdómatryggingar hjá viðskiptavinum sínum sem nýta boð í brjóstaskimun.

„Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein meðal kvenna hérlendis og sjáum við það greinilega í okkar tölum varðandi sjúkdómatryggingar. Það er sláandi hversu lágt hlutfall kvenna nýtir boð í skimun, sérstaklega þegar við berum okkur saman við tölur frá hinum Norðurlöndunum. Við hvetjum allar konur til að mæta þegar þær fá boð og vonum að þessi aðgerð skapi enn meiri hvata fyrir okkar viðskiptavini til þess. Við getum hækkað hlutfallið saman og þannig lækkað dánartíðni vegna brjóstakrabbameins”, segir Birkir Jóhannsson, forstjóri TM.

„Það er ánægjulegt að TM taki virkan þátt í að styðja við þetta forvarnarstarf og hvetji konur um allt land til að mæta í skimun, það getur raunverulega bjargað mannslífum,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.

Tm hópmynd

Nánar um brjóstaskimanir Heilsugæslunnar um land allt

Konur á aldrinum 40-74 sem hafa fengið boðsbréf í skimun fyrir brjóstakrabbameini geta pantað tíma hjá Brjóstamiðstöð Landspítala í síma 543-9560 milli kl. 9:30 og 15:30 alla virka daga. Brjóstamyndatakan fer fram á Brjóstamiðstöð, Eiríksgötu 5 í Reykjavík og á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlandsvegi.

Einnig er hægt að panta á vef Brjóstamiðstöðvarinnar eða senda fyrirspurn á netfangið brjostaskimun@landspitali.is.

Framundan er  brjóstaskimun á Landsbyggðinni:

  • Eskifjörður 20. - 24. október
  • Hvolsvöllur 27. - 28. október
  • Selfoss 3. - 14. nóvember
  • Reykjanesbær 24. - 28. nóvember

Mikilvægt er að hafa í huga að skimun er ekki fullkomin og krabbamein geta verið til staðar þó þau komi ekki í ljós við skimun. Því er mikilvægt að konur hafi samband við heilsugæslustöð ef hnútur finnst í brjósti eða breyting verður á brjósti.