Beint í efni

Krabba­mein í ristli og enda­þarmi -þekkj­um ein­kenn­in og áhættu­þætti

Víða um heim er apríl helgaður vitundarvakningu um ristil- og endaþarmskrabbamein sem er meðal allra algengustu krabbameina á heimsvísu.

Á Íslandi er það þriðja algengast, á eftir krabbameini í blöðruhálskirtli og brjóstakrabbameini. Árlega greinast að meðalatali 203 einstaklingar með slík mein og rúmlega 60 látast af völdum þeirra.

Þótt mánuðurinn sé senn á enda ætti umræðan síður en svo að vera einungis bundin ákveðnum tíma enda er alltaf mikilvægt að þekkja til einkenna sem geta bent til ristil- og endaþarmskrabbameins og jákvætt að kynna sér hvernig hægt er að draga úr áhættu.

Ýmsir lífsstílsþættir geta ýmist aukið eða dregið úr líkum á ristil- og endaþarmskrabbameinum. Áfengisneysla, reykingar, offita og mikil neysla á rauðu kjöti og unnum kjötvörum eru þeir þættir sem auka líkurnar en trefjarík fæða (ávextir, grænmeti, heilkorna matvæli, baunir) og regluleg hreyfing hafa verndandi áhrif.

Á vefsíðunni gottogeinfalt.is eru fjölmargar heilsusamlegar og góðar mataruppskriftir sem geta átt þátt í að sporna gegn myndun krabbameins í ristli og endaþarmi.

Einkenni krabbameins í ristli og endaþarmi geta verið óljós í byrjun en meðal þeirra geta verið blóð í hægðum,  viðvarandi breytingar á hægðavenjum og kviðverkir eða krampar sem hætta ekki. Einnig getur þyngdartap, þrekleysi og blóðleysi af óþekktum orsökum verið meðal einkenna. Leita ætti til læknis ef þessara einkenna verður vart.


Innleiðing skimunar fyrir ristil- og endaþarmskrabbameini hófst nýverið hérlendis. Þar til hún verður að fullu innleidd ráðleggjum við hjá  Krabbameinsfélaginu fólki að leita til heimilislæknis þegar það nær fimmtugsaldri og ræða þessi mál. Margir velja að hafa frumkvæði að því að láta kanna hvort vísbendingar um sjúkdóminn séu til staðar.

Nánari upplýsingar um krabbamein í ristli og endaþarmi, þar á meðal áhættuþætti, einkenni og meðferð má finna hér:
https://www.krabb.is/krabbamein/tegundir-krabbameina/ristil-og-endatharmskrabbamein