Beint í efni
  1. Heim
  2. Starfið
  3. Fréttir og miðlun
  4. Jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins 2026

Jóla­happ­drætti Krabba­meins­fé­lags­ins 2026

Miðar í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins hafa verið sendir út. Með þátttöku á fólk möguleika á glæsilegum vinningum um leið og það styrkir baráttuna gegn krabbameinum. 

Happdrætti Krabbameinsfélagsins hefur verið starfrækt óslitið í yfir 70 ár og komið mörgu til leiðar. Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með rekstri og framkvæmd happdrættisins og nýtir tekjur af því fyrst og fremst til fræðslu- og forvarnarstarfs. 

Sem dæmi um árangursrík verkefni sem happdrættið hefur komið til leiðar á undanförnum árum má nefna vitundarvakninguna Leghálsskimun – lítið mál! í janúar 2026 og hvatningarátakið Skrepp í skimun, sem hefur staðið yfir frá því í október 2023 og átt þátt í aukinni þátttöku kvenna í brjóstaskimunum. Fræðslumyndirnar Frá óvissu til vonar – leghálskrabbamein á Íslandi og Brjóstamein, sem sýndar voru á RÚV, voru einnig að hluta til fjármagnaðar fyrir tekjur happdrættisins.  

Í jólahappdrættinu fá konur senda happdrættismiða. Vinningar eru 406 talsins að verðmæti rúmar 67 milljónir króna.  

  • Aðalvinningurinn er JAC E30X rafmagnsbíll að verðmæti 4.390.000 krónur. 
  • 40 vinningar eru úttektir frá Erninum, hver að verðmæti 500.000 krónur.  
  • 75 vinningar eru úttektir frá Fjallakofanum, hver að verðmæti 75.000 krónur.  
  • 80 gjafabréf frá Icelandair, hvert að verðmæti 200.000 krónur.  
  • 210 gjafabréf frá Smáralind, hvert að verðmæti 100.000 krónur.  

Vinningarnir eru skattfrjálsir. 

Jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins 2026.

Dregið verður 24. desember og verða vinningstölur birtar hér í lok dags 28. desember og í Morgunblaðinu þann 29. desember. Byrjað verður að greiða út vinninga 13. janúar, 2027. 

Við hvetjum fólk til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Greiddur heimsendur miði er með tvöfaldar vinningslíkur (tvö miðanúmer). Happdrættismiðarnir eru sendir sem valkröfur til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka og eiga möguleika á glæsilegum vinningum. Síðasti dagur til að greiða fyrir happdrættismiða í heimabanka er 24. desember. 

Miðar í vefverslun Krabbameinfélagsins eru farnir í sölu en einnig má kaupa miða á skrifstofu félagins í Skógarhlíð 8. Frekari upplýsingar eru gefnar í síma 540 1928 eða í tölvupósti á happdraetti@krabb.is. Hægt er að hringja í númerið hér að ofan ef óskað er eftir að kaupa miða með greiðslukorti. Sölu lýkur í vefverslun á hádegi þann 24. desember. 

Baráttan gegn krabbameinum er brýn. Krabbameinsfélagið spáir að krabbameinum fjölgi um 63% frá árinu 2024 til ársins 2045, fyrst og fremst vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar. Það er hins vegar ekki greypt í stein því mörg krabbamein eru lífsstílstengd og því er hægt að fækka þeim. Rannsóknir benda til að hægt sé að koma í veg fyrir fjögur af hverjum tíu krabbameinum og þar skiptir öflugt forvarnarstarf öllu máli. Árangur af forvarnarstarfi sést meðal annars á nýgengi lungnakrabbameins, sem er á niðurleið hér á landi. Með því að taka þátt í happdrætti Krabbameinsfélagsins styrkir fólk með beinum hætti öflugt forvarnarstarf og stuðlar að bættum árangri.