Jákvæð þróun í meðferð krabbameina í ristli og endaþarmi
Nýuppfærð gæðaskráning fyrir krabbamein í ristli og endaþarmi sýnir jákvæða þróun í greiningu og meðferð þeirra. Í fyrsta sinn eru birtar upplýsingar um áhættu á endurkomu innan 5 ára frá greiningu.
Gæðaskráning krabbameina er samstarfsverkefni Krabbameinsfélagsins, Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Hún felur í sér samræmda söfnun og skráningu á ýmsum þáttum tengdum greiningu og meðferð krabbameina og veitir yfirsýn allt frá aðdraganda greiningar og til loka fyrstu meðferðar.
Upplýsingarnar má nýta til þess að stilla upp framtíðaráætlunum um kröfur til þjónustu, aðstöðu og búnaðar. Að auki er hægt að nýta þær til að rannsaka orsakir krabbameins og meta áhrif inngripa á krabbameinstíðni og lifun.
Nýlega kláraðist gæðaskráning fyrir alla sem greindust með krabbamein í ristli og endaþarmi árið 2024 og því hefur birting gæðaskráningarinnar verið uppfærð. Gagnvirka framsetningu má nálgast á vefsíðu Krabbameinsfélagsins.
Aukið samráð jákvæð þróun
Samráðsfundir eru þverfaglegir fundir sérfræðinga þar sem farið er yfir sjúkdómstilvik og meðferð ákvörðuð. Þeir gegna lykilhlutverki í ákvörðun krabbameinsmeðferða og eru mikilvægur vettvangur til að samræma greiningarferla og meðferðaráætlanir fyrir sjúklinga á landsvísu.
Staðlað og tímasett greiningar- og meðferðarferli að norrænni fyrirmynd er eitt af áhersluatriðum aðgerðaáætlunar í krabbameinsmálum og mál sem við hjá Krabbameinsfélaginu höfum ítrekað vakið athygli á. Mjög skýr jákvæð þróun hefur verið undanfarin ár í aukinni notkun á samráðsfundum og árið 2024 voru 92% tilfella með krabbamein í ristli og endaþarmi rædd á samráðsfundi.

Einnig má sjá hvernig skurðaðgerðir hafa færst úr opinni aðgerð yfir í aðgerð með kviðsjá og aðgerðarþjarka. Árið 2024 voru 97% valaðgerða framkvæmdar með kviðsjá eða aðgerðarþjarka sem fækkar fylgikvillum og styttir legutíma borið saman við opna skurðaðgerð.

Nýjung í gæðaskráningu krabbameina í ristli og endaþarmi
Gæðaskráning krabbameina er eins og áður segir ítarlegri skráning á ýmsum þáttum sem snúa að krabbameinsgreiningu og meðferðum. Skráningin er í stöðugri þróun og sífellt er verið að bæta nýjum upplýsingum við.
Nú hefur sjúklingum sem greindust með krabbamein í ristli og endþarmi árin 2014-2018 og voru ekki með fjarmeinvörp við frumgreiningu, verið fylgt eftir með tilliti til endurkomu sjúkdómsins . Því er í fyrsta skipti hægt að sjá hversu hátt hlutfall sjúklinga fá staðbundna endurkomu krabbameinsins eða fjarmeinvörp í fimm ára eftirfylgd .
Búast má við að um 11% sjúklinga á stigi I-III greinist með fjarmeinvörp innan 5 ára frá greiningu, betur má skoða áhættu á endurkomu eftir staðsetningu, kyni, aldurshópum og sjúkdómsstigi með gagnvirkri framsetningu á heimasíðu.

