Hvað þýðir aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum fyrir þig?
Ný aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum var samþykkt samhljóða á Alþingi vorið 2025. Við hjá Krabbameinsfélaginu teljum hana vera stórt framfaraskref og bindum miklar vonir við þær breytingar sem eru lagðar til. Kynntu þér aðgerðirnar og það sem áætlunin snýst um á mannamáli.
Krabbameinsáætlanir eiga uppruna sinn hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO), sem lagði til um aldamótin að lönd kæmu sér upp áætlunum til að vera betur í stakk búin til að takast á við aukna samfélagslega byrði af krabbameinum.
Það hefur lengi verið baráttumál hjá Krabbameinsfélaginu að á Íslandi sé unnið eftir virkri og fullfjármagnaðri krabbameinsáætlun eins og þekkist á hinum Norðurlöndunum. Slíkar áætlanir hafa skilað miklum árangri, ekki síst í Danmörku þar sem nú er unnið samkvæmt fimmtu útgefnu krabbameinsáætluninni.
Á Íslandi höfum við krabbameinsáætlun sem gildir fram til ársins 2030. Upp úr henni var nýlega unnin aðgerðaáætlun með skýrari markmiðum sem endurspegla líka grunngildi úr heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu. Markmið hennar er að tryggja árangur og framþróun til að krabbameinsþjónusta á Íslandi verði eins og best gerist annars staðar á Norðurlöndum.
Aðgerðirnar eru 15 talsins og snúa að öllum þáttum krabbameinsþjónustu, frá forvörnum og snemmgreiningu til endurhæfingar, auk þess að taka til stefnumótunar í málaflokkinum. Við höfum tekið saman yfirlit yfir helstu breytingar og af hverju þær eru mikilvægar og bjóðum þér að kynna þér málið nánar.
