Fólk vill hætta tóbaks- og nikótínneyslu og við viljum hjálpa
Jóhanna S. Kristjánsdóttir er hjúkrunarfræðingur með margra ára reynslu af tóbaksvörnum. Hún segir góðan stuðning skipta lykilmáli þegar til stendur að hætta tóbaks- og nikótínneyslu.
Í byrjun árs býður Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins upp á 6 vikna námskeið til að takast á við tóbaks- og nikótínfíkn. Jóhanna S. Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og leiðbeinandi námskeiðsins, hefur í yfir 20 ár aðstoðað fólk við að hætta reykingum og nikótínneyslu og segir enga tilviljun ráða því að námskeiðið hefst fljótlega eftir áramót. „Lífstílsbreytingar eru eitt helsta áramótaheitið.“
Margir hætta oft á dag, en byrja alltaf aftur
„Námskeiðið fer þannig fram að fyrstu tvær vikurnar fara í fræðslu og undirbúning til að hætta,“ segir Jóhanna. „Við byrjum á að fá skilning á eigin fíkn, vinnum með áhugahvötina og sjálfsþekkinguna. Síðan vinnum við með að viðhalda og það er erfiðast. Margir hætta oft á dag, en byrja alltaf aftur. Við viljum hjálpa fólki að læra hvað það getur gert til að byrja ekki aftur.“
Jóhanna segir faglegan stuðning gríðarlega mikilvægan, en að jafningjastuðningur sé líka gagnlegur. „Það er svo mikilvægt að fólk viti að það er ekki eitt að glíma við þetta, það hefur stuðning. Hluti af námskeiðinu er fræðsla en hluti er líka verkefnavinna og samtöl. Þá erum við að ræða saman í hópnum og fá stuðning hvort frá öðru. Það hefur sýnt sig að þau sem hafa stuðning eru líklegri til að viðhalda árangrinum.“
Stuðningurinn er til staðar, taktu skrefið núna
Tóbaksvarnir undanfarinna áratuga hafa fyrir löngu sannað gildi sitt, en markaðsöflin eru sterk og nýjar neysluvörur hafa rutt sér til rúms. „Við sjáum það því miður að þrátt fyrir að reykingar minnki er nikótínnotkun að aukast, sérstaklega meðal ungs fólks. Þar höfum við mestar áhyggjur af ungum konum á barnseignaraldri,“ segir Jóhanna. „Það er ótrúlegt hvað fólk veit í raun lítið um þessar nýju nikótínvörur. En þetta eru engin ný vísindi, það er mikið verið að rannsaka þetta og margt sem við vitum um skaðsemina.“
Jóhanna hvetur öll þau sem langar til að hætta tóbaks- og nikótínnotkun að kynna sér málið og skrá sig á námskeiðið. „Það eru mörg ljón á veginum, en við viljum svo gjarnan hjálpa. Stuðningurinn er til staðar, taktu skrefið núna.“
