Beint í efni
  1. Heim
  2. Stuðningur
  3. Viðburðir og námskeið
  4. Viltu losna við nikótínið á nýju ári? (1/6)
Viltu losna við nikótínið á nýju ári?

Viltu losna við nik­ót­ín­ið á nýju ári? (1/6)

Ertu að hugsa um að hætta að reykja, nota nikótínpúða, rafrettur eða aðrar nikótínvörur?

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins býður upp á 6 vikna námskeið til að takast á við tóbaks- og nikótínfíkn.

Á námskeiðinu færðu:

  • Fræðslu um nikótínfíkn og hvernig hægt er að takast á við hana.
  • Hagnýt ráð til að takast á við fráhvarfseinkenni og löngun í nikótín.
  • Stuðning og hvatningu í hópi fólks með sömu markmið.
  • Verkfæri til að byggja upp nikótínlaust líf til framtíðar.

Námskeiðið er sex skipti, þriðjudagana 5. janúar til 9. febrúar 2027, kl. 17:00 - 18:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8.

Leiðbeinandi er Jóhanna S. Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og tóbaksvarnasérfræðingur.

Greiða þarf staðfestingargjald kr. 5.000 við skráningu. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.

Skráning er á kh@krabb.is og pláss á námskeiðinu er ekki staðfest fyrr en við greiðslu skráningargjalds.