Aðildarfélög veita leikskólabörnum styrki fyrir sólarvörnum
Mörg aðildarfélög Krabbameinsfélagsins leggja sitt af mörkum til að vernda börn fyrir skaðlegum áhrifum sólar.
Aðildarfélög Krabbameinsfélagsins eru 27 talsins og starfa víðs vegar um landið. Mörg aðildarfélög styðja forvarnarverkefni með beinum hætti og í maí og júní hafa félög styrkt leikskóla í sínum heimabyggðum til kaupa á sólavörnum.
Eitt slíkt verkefni er á vegum Krabbameinsfélags Borgarfjarðar, en félagið veitti á dögunum styrki til allra leikskóla í Borgarbyggð. Styrkirnir voru eyrnamerktir til kaupa á sólarvörnum.
„Það hefur fylgt félaginu alveg frá stofnun að lögð sé áhersla á forvarnir og við vildum láta gott af okkur leiða og stuðla að forvörnum í nærsamfélaginu,“ segir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, formaður félagsins. „Við ákváðum að styrkja um ákveðna upphæð fyrir hvert barn og stjórnendur leikskólanna sjá síðan um að velja sólarvarnir við hæfi.“ Fulltrúar félagsins heimsóttu leikskólana til að afhenda styrkina og fengu alls staðar hlýjar móttökur.


Krabbameinsfélag Árnessýslu bauð einnig fulltrúum leikskólanna á svæðinu í heimsókn og afhenti gjafabréf fyrir sólarvörnum. Þau segja sömuleiðis að viðtökur hafi verið afar góðar og mikil ánægja með framtakið.

Börn eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir geislum sólar og því þarf að gæta sérstaklega að sólarvörnum þeirra. Á Íslandi þarf að huga að sólarvörnum frá apríl og fram í september og gott samstarf er á milli leikskóla og heimila varðandi sólarvarnir. Krabbameinsfélagið og aðildarfélög þess taka virkan þátt í vitundarvakningu um sólarvarnir og á vef félagsins má nálgast gátlista fyrir leikskóla og foreldra varðandi sólarvarnir barna og almenn ráð um sólarvarnir.

