93 milljónum veitt til krabbameinsrannsókna
Það ríkir alltaf mikil gleði í Skógarhlíðinni þegar tilkynnt er um úthlutun úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins. Að þessu sinni var vísindafólk styrkt um rúmlega 93 milljónir til 13 krabbameinsrannsókna, þar af voru fimm nýjar rannsóknir en átta rannsóknir hlutu áframhaldandi styrk. Við óskum styrkþegum hjartanlega til hamingju.
Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins var stofnaður 16. desember 2015 til að efla íslenskar rannsóknir á krabbameinum. Frá árinu 2017 fram til dagsins í dag hefur Vísindasjóðurinn veitt 106 styrki, til 63 rannsókna að upphæð 655, 5 milljónum króna.
Vísindamenn hafa lýst stofnun Vísindasjóðsins sem byltingu í krabbameinsrannsóknum hér á landi og segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, það afar ánægjulegt hversu mikið félagið hefur getað styrkt Vísindasjóðinn á undanförnum árum. Með því hefur Krabbameinsfélagið tekið þátt í að skapa forsendur til að áfram verði hægt að vinna af krafti að þessum mikilvægu verkefnum.
Krabbameinsfélagið fyrirmynd fyrir aðra
Magnús Karl Magnússon, formaður stjórnar Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins, tók undir orð Höllu í erindi sínu. „Ég er þakklátur Krabbameinsfélaginu fyrir að hafa farið í þá vegferð að stofna sjóðinn. Félagið er þannig fyrirmynd fyrir aðra sem fylgja á eftir og sýnir og sannar að því er treystandi til að láta fjármagnið rata á réttan stað og nýtist til góðs í samfélaginu.“
Styrkþegar Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins 2025 eru:
- Berglind Ósk Einarsdóttir hlýtur 7.272.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Greining á utanfrumuerfðaefni BRCA2-999del5 arfbera
- Eiríkur Steingrímsson hlýtur 9.740.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Hvernig veldur breytileiki í mRNA capping-ensíminu CMTR2 sortuæxlum og lungnakrabbameini?
- Guðrún Valdimarsdóttir hlýtur 8.460.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Áhrif seytinna æðaþelsþátta á framvindu brjóstakrabbameins með notkun æðaríks æxlingaprófs og RNA raðgreiningar.
- Gunnhildur Ásta Traustadóttir hlýtur 2.500.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Virkjun ónæmiskerfisins gegn krabbameini.
- Heiðdís B. Valdimarsdóttir hlýtur 4.944.840 kr. styrk fyrir rannsóknina: Áhrif örvandi dægurbundis ljóss á dægursveiflur, bólgumyndun og sjúkdómsbyrði meðal nýgreindra brjóstakrabbameinssjúklinga.
- Jens G. Hjörleifsson hlýtur 8.500.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Þróun á hrifilnæmum sykurrofshindrum gegn krabbameini.
- Krishna Kumar Damodaran hlýtur 4.300.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Þróun lífrænna rhodium (III) sambanda sem krabbameinslyf með aukið frumuaðgengi byggt á leysanleika og amínósýruferjum.
- Kristinn Ragnar Óskarsson hlýtur 9.705.656 kr. styrk fyrir rannsóknina: Áhrif krabbameinsvaldandi stökkbreytinga á byggingu, virkni og hreyfanleika umritunarþáttarins FOXA1.
- Siggeir Fannar Brynjólfsson hlýtur 8.000.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Áhrif BRCA2 999del5 kímlínustökkbreytingarinnar á ónæmissvar arfbera.
- Sigurdís Haraldsdóttir hlýtur 2.968.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Tengsl erfðabreytileika við tilkomu aukaverkana af völdum 5-FU og capecitabine lyfjameðferðar.
- Sigurður Yngvi Kristinsson hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Einkennavaldandi einstofna mótefnahækkun: Faraldsfræði og þróun greiningaraðferða.
- Sigríður Klara Böðvarsdóttir hlýtur 6.736.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Leit að lífmerkjum í brjóstakrabbameinsvef.
- Stefán Þórarinn Sigurðsson hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Slæmar horfur estrógen jákvæðra BRCA2 arfbera með brjóstakrabbamein.
Sum verkefni eru skemmtilegri en önnur og það er fátt jafn gefandi eins og að tilkynna umsækjendum að þeir hafi hlotið styrk úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins.
Rausnarleg gjöf frá ónefndum aðila
Stofnfé Vísindasjóðsins var fjármagnað af Krabbameinsfélagi Íslands og aðildarfélögum þess, en sjóðnum bárust einnig myndarlegar erfðagjafir frá minningarsjóðum Ingibjargar Guðjónsdóttur Johnson og Kristínu Björnsdóttur. Eftir stofnun sjóðsins hefur Krabbameinsfélagið haldið áfram að leggja sjóðnum til fjármagn með öflugum stuðningi frá almenningi og fyrirtækjum í landinu, auk þess sem sjóðnum barst erfðagjöf frá Guðlaugu Guðmundsdóttur, hjúkrunarfræðingi.
Á síðasta ári bar til tíðinda þegar sjóðnum barst einstaklega vegleg gjöf, að upphæð 50 milljónir króna, frá einstaklingi sem kýs að njóta nafnleyndar. Við úthlutunina í ár undirstrikaði Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, þakkir fyrir gjöfina, en ekki síður fyrir traustið. „Gjöfin var rausnarleg og sýnir sjóðnum gríðarlegt traust og alveg ofboðslega trú á framtíðina og framfarir.“
Rynkeby-sjóður Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna
Samkomulag er milli stjórnar Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins og Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna (SKB) að stjórn Vísindasjóðsins haldi utan um úthlutun úr Rynkeby-sjóði SKB og fari eftir sömu reglum og gilda fyrir Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins. Úr sjóðnum var úthlutað í þriðja sinn samtals 24,9 milljónum króna, samhliða úthlutun úr Vísindasjóði
Styrkþegar Rynkebysjóðs Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna 2025 eru:
- Linda Viðarsdóttir hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Hlutverk FGD5-AS1 í beinsarkmeinum.
- Lisa Maria Wu hlýtur 9.870.000 kr. styrk fyrir rannsóknina: Hugarfar: Greining og meðferð á hugrænum og taugafræðilegum erfiðleikum eftir krabbameinsmeðferð í æsku.
- Sara Sigurbjörnsdóttir hlýtur 5.000.000 kr. Styrk fyrir rannsóknina: Óhefðbundið hedgehog boðferli í Ewing sarkmeini í börnum.


