118 milljónir til krabbameinsrannsókna í stærstu úthlutun frá upphafi
Tíunda úthlutun Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins þann 11. júní var sú langstærsta frá upphafi, en alls var 118 milljónum veitt til 13 rannsókna.
Krabbamein snertir okkur öll á einn eða annan hátt - fyrr eða síðar. Að fá krabbamein er ein stærsta áskorunin í lífi fólks. Árlega greinast að meðaltali 2.055 einstaklingar með krabbamein og 1 af hverjum 3 Íslendingum fær krabbamein á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að leita allra leiða til að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins með og eftir krabbamein. Framfarir nást með vísindastarfi og aukinni þekkingu þar sem Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins gegnir lykil hlutverki hér á landi.



43 milljónum úthlutað árið 2017 – 118 milljónum árið 2026
Samhliða því að stuðla að mikilvægum framförum á vettvangi krabbameina þá efla styrkveitingarnar innviði íslensks vísindasamfélags. Vísindamenn hafa ítrekað lýst Vísindasjóðnum sem byltingu í krabbameinsrannsóknum hér á landi og að án styrkveitinganna hefðu þeir ekki getað náð sama árangri. Mikilvægt er að skapa aðstæður sem gera vísindafólki kleift að sinna sínum rannsóknum hérlendis.
Ýmislegt hefur breyst á þeim 10 árum sem liðin eru frá því að fyrst var úthlutað. Til að mynda nam heildarstyrkveiting fyrstu úthlutunar 43 milljónum króna sem skiptist á 11 rannsóknir og var hæsti styrkurinn þá 7,5 milljónir. Í ár var hins vegar 118 milljónum veitt til 13 rannsókna og hlutu fjórar rannsóknir hæsta styrk að upphæð 12 milljónum króna.
Við úthlutunina sagði Magnús Karl Magnússon, formaður stjórnar Vísindasjóðsins, að sjóðurinn hafi umbreytt krabbameinsrannsóknum á Íslandi á síðasta í áratug. Hann undirstrikaði jafnframt mikilvægi þess að hafa ávallt hugfast til hvers sjóðurinn er sem er að draga úr þeim skaða sem krabbamein valda og auka lífsgæði fólks með krabbamein.
Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur á árabilinu 2017-2026 veitt 119 styrki til 67 rannsókna að upphæð 774 milljónum króna.
Áhrif til góðs til framtíðar
Það hlýtur að teljast einstakt hér á landi að almannaheillafélag geti veitt slíka styrki, hvað þá í umhverfi þar sem vísindastyrkir hafa heldur verið að dragast saman. Ástæðan fyrir því er öflugur stuðningur frá almenningi og fyrirtækjum í landinu, auk skýrrar stefnu félagsins um að rannsóknir séu leiðin fram á við. Þá hefur Bláa Lónið einnig verið öflugur styrktartaðili sjóðsins í gegnum árin.
Eitt af því sem gerði það að verkum að úthlutun ársins í ár er jafn vegleg og raun ber vitni er að félaginu bárust þrjár afar rausnarlegar erfðagjafir á síðasta ári, frá Auðuni Víði Péturssyni, Ástu Björnsdóttur og Þorsteini Trausta Þórðarsyni sem stjórn félagsins ákvað að myndu að verulegu leyti renna til Vísindasjóðsins.
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, vék sérstaklega að þeim þætti sem minningar- og erfðagjafir hafa átt í fjármögnun Vísindasjóðsins í erindi sínu við úthlutunina. Þar fer saman örlæti þessara einstaklinga annars vegar og framsýni hjá stjórn að ráðstafa fjármununum með þessum hætti. „Ég fylltist miklu stolti að eiga þátt í því að fylgja eftir þessum stóru ákvörðunum" sagði Halla.

Rannsóknir sem bæta meðferðarúrræði
Við úthlutunina kynntu tveir styrkþegar úr vísindasjóði og einn úr Rynkeby-sjóði Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna rannsóknir sínar sérstaklega.
Heiðdís B. Valdimarsdóttir hefur rannsakað hvort dægurbundið ljós geti leiðrétt hormónaflæði og dregið úr bólgumyndun hjá sjúklingum sem hafa farið í skurðaðgerð við brjóstakrabbameini. Kristinn Ragnar Óskarsson vill auka þekkingu til að þróa meðferðir gegn krabbameinum sem bregðast lítið við núverandi meðferðarúrræðum. Ný rannsókn Valtýs Stefánssonar Thors miðar að því að finna rétta og einstaklingsmiðaða skammta af sýklalyfjum fyrir börn með krabbamein sem fá alvarlegar sýkingar.
Frá mér til mín eftir tíu ár
Við úthlutunina var sýnt myndband þar sem þrír styrkþegar lögðu fram óskir sínar um framfarir fyrir næstu tíu ár.
Styrkþegar Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins 2026 eru:
- Erna Magnúsdóttir hlýtur 12.000.000 kr. fyrir rannsóknina:
Kortlagning víxlverkana frumuvistar og Waldenström Macroglobulinaemia æxla með notkun sjálfskipuleggjandi örlíffæra beinmergs.
- Siggeir Fannar Brynjólfsson hlýtur 12.000.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Greining á stakskorti í ónæmisfrumum heilbrigðra arfbera BRCA2-999del5 stökkbreytingarinnar.
- Sigríður Gunnarsdóttir hlýtur 12.000.000 kr. fyrir rannsóknina:
Óuppfylltar þarfir fyrir heilbrigðisþjónustu eftir lok krabbameinsmeðferðar á Íslandi og tengsl þeirra við lífsgæði og heilsulæsi: Lýðgrunduð þversniðsrannsókn.
- Stefán Sigurðsson hlýtur 12.000.000 kr. fyrir rannsóknina:
Líffræðilegar skýringar á lakari lifun í BRCA2-tengdu og snemmkomnu estrógenviðtaka jákvæðu brjóstakrabbameini.
- Ólöf Kristjana Bjarnadóttir hlýtur 11.700.000 kr. fyrir rannsóknina:
Meðferðarheldni innkirtlameðferðar í hormónajákvæðu brjóstakrabbameini á Íslandi 2008-2023: þróun klínísks spálíkans til að spá fyrir um meðferðarheldni.
- Sigurður Yngvi Kristinsson hlýtur 11.416.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Einkennavaldandi einstofna mótefnahækkun: Faraldsfræði og þróun greiningaraðferða.
- Eiríkur Steingrímsson hlýtur 9.940.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Hvernig veldur breytileiki í mRNA capping-ensíminu CMTR2 sortuæxlum og lungnakrabbameini?
- Sigríður Klara Böðvarsdóttir hlýtur 9.050.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Leit að lífmerkjum í brjóstakrabbameinsvef.
- Kristinn Ragnar Óskarsson hlýtur 9.023.244 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Áhrif krabbameinsvaldandi stökkbreytinga á byggingu, virkni og hreyfanleika umritunarþáttarins FOXA1.
- Guðrún Valdimarsdóttir hlýtur 6.750.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsókina:
Áhrif seytinna æðaþelsþátta á framvindu brjóstakrabbameins með notkun æðaríks æxlingaprófs og RNA raðgreiningar.
- Heiðdís B. Valdimarsdóttir hlýtur 5.415.840 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina:
Áhrif örvandi dægurbundis ljóss á dægursveiflur, bólgumyndun og sjúkdómsbyrði meðal nýgreindra brjóstakrabbameinssjúklinga.
- Krishna Kumar Damodaran hlýtur 3.800.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Þróun lífrænna rhodium (III) sambanda sem krabbameinslyf með aukið frumuaðgengi byggt á leysanleika og amínósýruferjum.
- Gunnhildur Ásta Traustadóttir hlýtur 2.500.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Virkjun ónæmiskerfisins gegn krabbameini.
Rynkeby-sjóður Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna
Samkomulag er milli stjórnar Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins og Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna (SKB) að stjórn Vísindasjóðsins haldi utan um úthlutun úr Rynkeby-sjóði SKB og fari eftir sömu reglum og gilda fyrir Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins. Úr sjóðnum var úthlutað í fjórða sinn rúmlega 15 milljónum króna, samhliða úthlutun úr Vísindasjóði.
Styrkþegar Rynkebysjóðs Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna 2026 eru:
- Sara Sigurbjörnsdóttir hlýtur 5.000.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina:
Óhefðbundið hedgehog boðferli í Ewing sarkmeini í börnum. - Valtýr Stefánsson hlýtur 10.138.856 kr. (ný rannsókn) fyrir rannsóknina:
PANDA – Onc: Bestun sýklalyfjameðferðar með beta-laktam lyfjum hjá börnum í krabbameinsmeðferð út frá þýðis- og lífeðlisfræðilegum lyfjahvarfalíkönum.

