Akureyri

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins í samstarfi við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er upplýsinga og stuðningsþjónusta fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og fyrir aðstandendur. Þjónustan er einnig fyrir þá sem hafa misst nákominn úr krabbameini.

Markmið Ráðgjafarþjónustunnar er að aðstoða fólk við að ná jafnvægi í lífinu við þær breyttu aðstæður sem greining krabbameins veldur.

Skrifstofan á Akureyri er til húsa að Glerárgötu 34, 2. hæð og er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-14, sími 461 1470. Viðtöl eru fólki að kostnaðarlausu.

Hægt er að koma án þess að gera boð á undan sér en einnig hægt að bóka viðtöl eða senda fyrirspurnir á jenny@krabb.is. Viðtöl eru fólki að kostnaðarlausu.

  • Ráðgjafi Krabbameinsfélagsins er Jenný Valdimarsdóttir, hjúkrunarfræðingur.

Á heimasíðu Krabbameinsfélagsins er að finna fjölbreytt rafrænt efni:

Fyrirlestrar, ráðstefnur og viðburðir

Fræðsluefni á heimasíðu
Á heimasíðu krabbameinsfélagsins er hægt að finna ýmislegt fræðsluefni tengt krabbameini. Ef farið er undir flipann „ Ráðgjöf og stuðningur “ er hægt að finna fræðsluefni um ýmislegt tengt því að greinast með krabbamein eða vera aðstandi. Þar er einnig hægt að sjá viðburði og námskeið sem eru á döfinni hjá Ráðgjafarþjónustunni.