Leghálskrabbameinsskimun
Með skipulegri skimun fyrir krabbameini í leghálsi er reynt að gera sem mest gagn og valda sem minnstum skaða. Ef leitað er of sjaldan er hætta á að missa af alvarlegum frumubreytingum og krabbameini en ef leitað er of oft getur það leitt af sér ónauðsynlegt eftirlit, leghálsspeglanir eða keiluskurði.
Í upphafi árs 2021 tók heilsugæslan við leghálsskimunum, samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra frá 2019 um breytt fyrirkomulag skimana.
Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulagið, tímapantanir og fleira má fá á upplýsingasíðu samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana. Þar er meðal annars að finna bækling um skimun vegna frumubreytinga í leghálsi.