Stuðningshópar
Á vegum Krabbameinsfélagsins starfa nokkrir stuðningshópar krabbameinssjúklinga og aðstandenda. Þeir bjóða meðal annars upp á jafningjafræðslu.
Stuðningshóparnir hafa aðstöðu hjá Ráðgjafarþjónustunni að Skógarhlíð 8. Einnig eru stuðningshópar starfandi á landsbyggðinni.
- Hittast reglulega hjá Ráðgjafarþjónustunni
- Ætlaðir þeim sem hafa eða hafa haft krabbamein
- Einnig fyrir aðstandendur
- Bjóða upp á jafningjafræðslu og jafningjastuðning
Rannsóknir sýna að þeim sem taka þátt í stuðningshópum líður oft betur og upplifa aukin lífsgæði. Þeir eru líklegri til að hafa meiri von og eru oft ákveðnari í því að takast á við viðfangsefnið.