Símaráðgjöf
Símaráðgjöf Krabbameinsfélagsins er í síma 800 4040
Við leggjum metnað okkar í að veita upplýsingar, ráðgjöf, fræðslu og stuðning til dæmis varðandi líkamleg og sálræn einkenni, réttindamál og þjónustu sem í boði er.
Almennar upplýsingar um þjónustuna
Hjá Krabbameinsfélaginu starfa hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafi, sálfræðingur og kynfræðingur. Við erum tilbúin að aðstoða;
- ef þú eða einhver nákominn þér hefur greinst með krabbamein
- ef þú hefur spurningar um krabbamein, meðferð eða einkenni
- ef þú vilt fræðast um hvernig draga má úr líkum á að fá krabbamein
- ef þú hefur misst ástvin úr krabbameini.
Við erum tilbúin að hlusta og liðsinna þér.
Um símaráðgjöfina
- Ráðgjafar eru við símann mán - fim frá kl. 9-16 og á föstudögum frá kl. 9-14. Símanúmerið 800 4040 er gjaldfrjálst.
- Hægt er að senda okkur fyrirspurnir á radgjof@krabb.is. Reynt er að svara sem fyrst eða innan sólarhrings á virkum dögum.
- Þú getur hringt í stuðningssímann hvaðan af landinu sem er.
- Þú þarft ekki að segja til nafns og farið er með allar upplýsingar í samtalinu sem trúnaðarmál.
Við hjá Krabbameinsfélaginu vitum að eftir greiningu krabbameins verður tilveran á köflum snúin og erfið. Við viljum aðstoða þig við að finna leiðir til að bæta og auðvelda þér lífið.
Við leggjum metnað okkar í að veita upplýsingar, ráðgjöf, fræðslu og stuðning til dæmis varðandi líkamleg og sálræn einkenni, félagsleg réttindi og þjónustu sem í boði er.
Algengar ástæður þess að fólk nýtir sér símaráðgjöfina
- Ég meðtók ekki allar upplýsingarnar sem ég fékk á spítalanum í dag.
- Ég finn fyrir depurð.
- Ég þarf að koma athugasemd á framfæri.
- Ég finn fyrir kvíða.
- Ég upplifi sorg.
- Ég finn fyrir vanlíðan eftir lyfjameðferðina/geislameðferðina.
- Ég hef áhyggjur af fjárhagnum.
- Ég er aðstandandi og þarf stuðning og ráðleggingar.
- Mig vantar upplýsingar um þjónustu, stuðning og réttindamál.
- Mig vantar ráðleggingar varðandi líkamleg einkenni og óþægindi.
- Ég þarf fræðslu um hvernig ég ræði við börnin mín um krabbamein.
- Ég fékk slæmar fréttir í dag og þarf tala við einhvern.
- Ég þarf ráðleggingar varðandi lyfin mín.
- Ég óttast að ég sé með krabbamein.
- Mig langar að vita hvað ég get gert til draga úr líkum á krabbameini.
- Ég þarf upplýsingar tengdar skimun vegna krabbameinssjúkdóma.
Hringdu í síma 800 4040 og spjallaðu við okkur um það sem þér liggur á hjarta. Stundum er gott að ræða málin við utanaðkomandi aðila.
https://youtu.be/R5nSWSVS4y0
Myndband um starfsemi Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins