Sígarettureykingar
Taktu prófið
Með því að taka prófið kemstu að nokkrum áhugaverðum staðreyndum um sígarettureykingar.
Með því að taka prófið kemstu að nokkrum áhugaverðum staðreyndum um sígarettureykingar.
1Þeir sem hætta að reykja fyrir fertugt minnka líkurnar á að deyja úr reykingatengdum sjúkdómum um 90%.
Rétta svarið er: "Rétt"
Reykingamenn eru þrefalt líklegri til að deyja fyrir aldur fram miðað við þá sem hafa aldrei reykt. Algengustu dánarorsakirnar meðal reykingamanna eru vegna krabbameina, hjartasjúkdóma og öndunarfærasjúkdóma. Lífslíkur reykingamanna eru meira en 10 árum styttri en þeirra sem aldrei hafa reykt. Þeir sem hætta að reykja fyrir 35 ára aldur eru með svipaðar lífslíkur og þeir sem aldrei hafa reykt. Þeir sem hætta milli 35 og 44 ára minnka líkur sínar að deyja úr reykingatengdum sjúkdómum um 90% og þeir sem hætta milli 45 og 54 ára minnka líkurnar um 60%.
Rétta svarið er: "Rétt"
Einn pakki með 20 sígarettum kostar þrjár klukkustundir og 40 mínútur af lífi þínu. Meðalreykingamaður minnkar lífslíkur sínar um 10 ár.
Rétta svarið er: "Rangt"
Sýnt hefur verið fram á að reykingar auka líkur á 14 tegundum krabbameina.
Rétta svarið er: "Rétt"
Miðaldra karlmenn sem reykja eru í næstum fjórfalt meiri hættu og miðaldra konur næstum fimmfalt meiri hættu að látast úr hjartaáfalli miðaða við jafnaldra sína sem aldrei hafa reykt. Gögn Hjartaverndar sýna að íslenskar konur eru í enn meiri hættu eða sjöfalt aukinni hættu á að deyja úr hjartaáfalli ef þær reykja pakka á dag.
Heimildir:
Rétta svarið er: "Rangt"
Yfir 7.000 mismunandi efni og efnasambönd finnast í tóbaki, um 250 þeirra eru skaðleg og 70 eru skráð sem krabbameinsvaldandi hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO).
Heimildir:
6Á hverjum degi verða til tveir nýir reykingamenn á Íslandi sem hafa ekki lokið framhaldsskóla.
Rétta svarið er: "Rétt"
Um 1.720 reykja á efri stigum framhaldsskóla og 1.020 í neðri stigum framhaldsskóla. Í grunnskóla reykja um 230 börn.
Meira en 3.000 börn og unglingar í grunn- og framhaldsskólum landsins reykja daglega. Mögulega er hlutfallið hærra því tíðni reykinga meðal unglinga sem ljúka ekki framhaldsskóla er hærri. Þessi börn eiga 10 ára skemri lífshorfur en þeir sem aldrei byrja að reykja, nema þau hætti að reykja.
Heimildir:
Rétta svarið er: "Rétt"
Þrátt fyrir að mörgum finnist verð á sígarettupakka hátt þá greiðir hver Íslendingur að meðaltali um 67.000 á ári í samfélagslegan kostnað af völdum reykinga.
Rétta svarið er: "Rangt"
Engin lög eru hér á landi sem banna börnum að reykja. Það má bara ekki selja börnum yngri en 18 ára tóbak.
9Þegar reykt er innanhúss þá hverfa eiturefnin úr umhverfinu eftir að reykurinn gufar upp.
Rétta svarið er: "Rangt"
Efni úr tóbaksreyk setjast í húsgögn, fatnað, gluggatjöld og fleiri húsmuni og geta þannig borist til barna og annarra sem komast í snertingu við það sem tóbaksreykurinn hefur sest á.
Rétta svarið er: "Rangt"
Öndun barna er hraðari en hjá fullorðnum og lungu þeirra eru minni að rúmmáli. Barn andar því að sér hlutfallslega meira af krabbameinsvaldandi efnum í sígarettureyk en fullorðinn myndi gera í sama umhverfi.
Rétta svarið er: "Rétt"
Margfalt færri reykingamenn reyna að hætta á mánudögum en laugardögum.
Heimild:
Rétta svarið er: "Rétt"
Fyrir hvern einstakling sem deyr af völdum reykinga eru a.m.k. þrjátíu sem lifa en þjást af alvarlegum reykingatengdum sjúkdómum.
Ef við miðum við að nú eru um 8.6 milljónir Bandaríkjamanna á lífi með lífsógnandi sjúkdóma af völdum reykinga þá jafngildir það um 8.600 Íslendingum.
Rétta svarið er: "Rétt"
Auk þess sem reykingar flýta öldrun og hrörnun almennt þá hefur verið sýnt fram á að reykingamenn verða gráhærðir fyrr en aðrir. Grátt hár er þó oftast tengt erfðum og oftast ekki tengt reykingum.
Rétta svarið er: "Rangt"
Efni í tóbaksreyk brjóta niður próteinið elastín, sem er mikilvægt til að viðhalda teygjanleika og unglegu útliti húðar.
15Með því að reykja einu sinni vatnspípu (hookah) færðu jafnmikið af tjöru eins og þú reyktir 5 sígarettur.
Rétta svarið er: "Rangt"
Rétta svarið er 25 sígarettur eða rúmur pakki í einum rykk.
Rétta svarið er: "Rétt"
Eftir 20 ár er hann búinn að eyða 10 milljónum. Það jafngildir t.d nokkrum utanlandsferðir eða útborgun í íbúðarhúsnæði.
Rétta svarið er: "Rétt"
Líkt og að skerða blóðflæði til hjartans þá skerða efnin í tóbaksreyk einnig blóðflæði til getnaðarlimsins.
Rétta svarið er: "Rétt"
Þetta eru nær tuttugu sinnum öll íslenska þjóðin. Spár gera ráð fyrir að fjöldi manna sem deyja af völdum reykinga verði kominn upp í 8 milljónir árið 2030.
Rétta svarið er: "Rangt"
Um 28% þeirra sem deyja vegna óbeinna reykinga í heiminum eru börn.
Rétta svarið er: "Rétt"
Þetta miðast við að reyktur sé einn pakki af sígarettum á dag í fimmtíu ár. Eftir hverja reykta sígarettu byrja fráhvörf að koma fram einni til tveimur klukkustundum eftir að hún hefur verið reykt því þá hefur líkaminn brotið niður helming af nikótíninu sem kom úr sígarettunni. Reykingamaðurinn tengir oft vellíðan við að reykja hverja sígarettu þó í raun sé verið að reyna að draga úr vanlíðaninni.