Beint í efni

Taktu þátt

Allir geta tekið þátt í Styrkleikunum!

Opið fyrir alla!

Viðburðurinn er opinn öllum sem vilja sýna stuðning í verki. Fjölskyldur, vinahópar, fyrirtæki og félagasamtök geta skráð sig sem lið og unnið saman að því að hafa fulltrúa á hreyfingu með boðhlaupskefli allan sólarhringinn. Algengt er að liðsfélagar skiptist á að ganga í einn til tvo tíma í senn. Þetta er ekki keppni heldur snúast Styrkleikarnir um samstöðu, samveru og samtakamátt liðanna í að styðja við, heiðra eða minnast einstaklinga sem hafa fengið krabbamein.

Hér er hlekkur á skráningasíðuna fyrir Styrkleikana

#1 Búa til aðgang að skráningarsíðunni.

Skráningarsíðan þín verður svo persónuleg aðgangssíða fyrir þig þar sem þú getur safnað styrkjum fyrir rannsóknum á krabbameinum ásamt stuðningi og þjónustu við einstaklinga sem hafa greinst og aðstandendur þeirra.

#2 Skrá nýtt lið til leiks eða skrá sig í lið sem þegar er skráð.

Til þess að skrá nýtt lið þarf að ýta á "hefja söfnun" hnappinn á síðunni. Þar á eftir þarf að velja viðburð til þess að "skrá lið". Þegar þangað er komið þarf að velja "teymi" og fylla út þær upplýsingar sem vantar.

Til þess að skrá sig í þegar skráð lið þarf að finna liðið í listanum og velja "viltu ganga í liðið". Fylla svo út þær upplýsingar sem beðið er um.

Ekki gleyma að setja skemmtilegar myndir á bæði einstaklings og liðasíðurnar sem eru lýsandi fyrir þátttakendurna.

#3 Að lokinni skráningu má deila síðunni á samfélagsmiðlum

Til þess að fá fleiri í liðið er hægt að deila síðunni áfram bæði í tölvupósti eða á samfélagsmiðlum með því að notast við viðeigandi tákn fyrir neðan skráningarmyndina. Þetta á bæði við einstaklingssíður og liðasíður.

  • Nei, það kostar ekkert að taka þátt í Styrkleikunum. Viðburðurinn er opinn öllum, bæði þátttakendum og gestum yfir sólarhringinn.

  • Hér er hlekkur á skráningasíðuna fyrir Styrkleikana. Þú byrjar á að búa þér til aðgang svo geturu skráð þig í lið eða búið til nýtt lið. Skráningarsíðan þín verður svo persónuleg aðgangssíða fyrir þig þar sem þú og liðið þitt getur safnað styrkjum fyrir rannsóknum á krabbameinum ásamt stuðningi og þjónustu við einstaklinga sem hafa greinst og aðstandendur þeirra.

  • Þú byrjar á að fara inn hér og búa þér til aðgang. Þegar þú ert komin(n) með aðgang getur þú skráð lið á Styrkleikana. Þú verður þá titlaður liðsstjóri liðsins og hefur aðgang að því þegar liðsféalgar bætast í hópinn.

  • Nei, hver og einn þátttakandi gengur eins og hann vill. Liðið sem viðkomandi er skráður í skiptir með sér sólarhringnum til þess að gæta þess að boðhlaupskeflið sé á hreyfingu allan tímann. Hins vegar er það ákvörðun hvers og eins hversu mikið eða lengi viðkomandi gengur/hleypur.

  • Já! Öll börn eru velkomin á Styrkleikana og eitthvað verður um að vera fyrir alla yfir daginn og fram á kvöld.

  • Ljósastundin er fastur dagsskrárliður á Styrkleikunum um allan heim. Hún er haldin þegar dimma tekur og kveikt er á kertum í ljósberum sem þátttakendur hafa keypt og skreytt yfir daginn. Í ljósastundinni leyfum við okkur að minnast þeirra sem við höfum misst og vera þakklát fyrir þá sem við höfum fengið að hafa hjá okkur.

  • Í upplýsingatjaldinu eru ljósberarnir seldir en oft einnig er hægt að nálgast þá í matartjaldinu á viðburðinum. Í nágrenni við upplýsingatjaldið er svo aðstaða til þess að skreyta ljósberana.

  • Já! Það er seldur matur allan sólarhringinn á Styrkleikunum og allir þátttakendur og gestir geta nálgast bæði holla næringu og góðgæti á viðburðinum.

  • Liðsstjórinn er sá sem skráir lið til leiks. Viðkomandi verður að halda utanum þátttökuna hjá sínu liði og skipta sólarhringnum niður á liðsfélaga. Liðsstjóri getur einnig ásamt liði sínu ákveðið að vera með eigin uppákomur yfir sólarhringinn til þess að nýta viðburðinn sem hópefli fyrir þátttakendurna. Hér má finna fleiri praktískar upplýsingar og hugmyndir fyrir liðsstjóra.

  • Já, bolir verða seldir með áletrun fyrir liðið áður en að viðburðinum kemur. Hægt er að kaupa boli hér. Einnig eru slíkar upplýsingar sendar á tölvupósti til allra liðsstóra.

    Einnig er hægt að kaup boli á staðnum en þá án áletrunar.

  • Það er gott að vera með tjald fyrir liðið sem heimastöð á meðan Styrkleikunum stendur. Þar geta liðsfélagar geymt dót og annað á meðan viðburðinum stendur en einnig er hægt að nota tjaldið sem hópefli og samkomustað fyrir liðsfélaga og aðstandendur. Styrkleikarnir eru kjörinn viðburður til þess að efla samstöðu og samtakamátt innan liðanna og tjöldin eru lykilatriði í slíkri vinnu.

    Upplýsingar um hvernig má nálgast tjald eru sendar til liðsstjóra 2-3 vikum fyrir viðburðinn og geta þeir þá pantað tjald í gegnum Styrkleikana sem sér um að láta setja það upp.