Viðtöl hjá ráðgjafa - Sauðárkrókur
Ráðgjafi frá Krabbameinsfélaginu verður á Sauðárkróki, fimmtudaginn 4. desember.
Viðtölin verða á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.
Viðtölin eru í boði bæði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur. Þjónustan er öllum opin, endurgjaldslaust. Við hvetjum einstaklinga í nágrannar sveitarfélögunum til að nýta sér einnig þjónustuna.
Til að bóka viðtal er hægt að hringja í félagið í síma 461-1470 eða með því að senda póst á kaon@krabb.is
Tími - 4. desember kl. 9-16
