Sumargrill Krafts
Árlegt sumargrill fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra í Hlöðunni Gufunesbæ!
Kraftur heldur árlegt sumargrill fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra í Hlöðunni Gufunesbæ, fimmtudaginn 26. júní frá 18-19:30. Takið daginn frá!
Við erum meðal annars búin að panta:
- Sól
- Leiki
- Andlitsmálningu
- Blöðrudýr
- Búlluna
- Ísbílinn
- Lalla töframann
- Prettyboi Tjokkó!
Viðburðurinn er aðeins fyrir félagsmenn Krafts og fjölskyldur þeirra ❤️