Styrkleikarnir í Vestmannaeyjum
Krabbavörn og Krabbameinsfélag Íslands standa fyrir Styrkleikum í annað sinn laugardaginn 29. ágúst kl. 12:00 - 21:00 í Herjólfsdal.
Styrkleikarnir eru einstakur og fjölskylduvænn viðburður þar sem þátttakendur skiptast á að ganga fyrir fram ákveðna leið, hver á sínum hraða, í fyrir fram ákveðinn tíma.
Styrkleikarnir eru táknræn áminning um mikilvægi þess að sýna stuðning og samstöðu í verki og minna á að enginn þarf að takast á við krabbamein einn.
Yfir daginn verður boðið upp á fjölskyldudagskrá sem auglýst verður þegar nær dregur.
Klukkan 20:00 hvetjum við alla Eyjamenn til að koma saman í Herjólfsdal og taka þátt í lokahring Styrkleikanna. Að göngunni lokinni verður kertafleyting á tjörninni þar sem við leyfum okkur að vera þakklát fyrir þá sem við höfum fengið að hafa hjá okkur og minnumst þeirra sem við höfum misst.
