Beint í efni
Styrkleikarnir Vestmannaeyjum

Styrk­leik­arn­ir í Vest­manna­eyj­um

Krabbavörn og Krabbameinsfélag Íslands standa fyrir Styrkleikum í annað sinn laugardaginn 29. ágúst kl. 12:00  - 21:00 í Herjólfsdal.

Styrkleikarnir eru einstakur og fjölskylduvænn viðburður þar sem þátttakendur skiptast á að ganga fyrir fram ákveðna leið, hver á sínum hraða, í fyrir fram ákveðinn tíma.

Styrkleikarnir eru táknræn áminning um mikilvægi þess að sýna stuðning og samstöðu  í verki og minna á að enginn þarf að takast á við krabbamein einn.

Yfir daginn verður boðið upp á fjölskyldudagskrá sem auglýst verður þegar nær dregur.

Klukkan 20:00 hvetjum við alla Eyjamenn til að koma saman í Herjólfsdal og taka þátt í lokahring Styrkleikanna. Að göngunni lokinni verður kertafleyting á tjörninni þar sem við leyfum okkur að vera þakklát fyrir þá sem við höfum fengið að hafa hjá okkur og minnumst þeirra sem við höfum misst.